Afi minn er rosalega gamall en hann er samt ekki dauður

Afi minn er rosalega gamall en hann er samt ekki dauður
Rut Indriðadóttir

Rut Indriðadóttir

„Afi minn er rosalega gamall en hann er samt ekki dauður“ segir nemandi á yngsta stigi við mig. Þetta er einstakur nemandi með sérþarfir. Honum líður illa í stórum hópi þar sem áreiti er mikið. En hann er áhugasamur, frjór og glaður þegar hann kemst í námsaðstæður sem henta honum. Í lítinn hóp þar sem hann er öruggur og í nánu sambandi við kennara. Það er mikilvægt að geta gefið honum tíma, athygli og næði. Það sem þessum nemanda er efst í huga þessa stundina er afi hans sem er svo gamall að hann er næstum 100 ára. Þó ég hafi undirbúið kennslulotuna eru hugrenningar nemandans um afa hér með orðnar grunnur að viðfangsefni okkar.

Þó heyri ég sagt að kennsluaðferðir í grunnskólanum séu einhæfar og bókamiðaðar og að stærð námshópa skipti ekki máli.

Þar sem mörg börn eru saman komin reynir á samskipti og vitanlega kemur eitt og annað upp. Góð samskipti við heimilin eru allra hluta mikilvæg, ekki síst ef ágreiningur kemur upp milli nemenda eða foreldra. Mikill tími fer í að rækta gott samband við heimilin. Margir nemendur eiga tvö heimili og ekki ríkir alltaf eining milli heimila um málefni nemanda. Þá þarf kennarinn að vanda sig og stíga varlega til jarðar. Og getur þú, lesandi góður, ímyndað þér hve vandasamt það er fyrir umsjónarkennara að eiga í góðum samskiptum við foreldra allra aðila, meints geranda og þolanda, ef upp koma eineltismál eða ósætti í samskiptum?

Ég heyri þó oft fullyrt að kennarar nenni ekki að taka á ágreiningsmálum eða vera í samskiptum við heimili.

Lítil stúlka með kvíða mætir hágrátandi til mín í fyrstu lotu að morgni. Hún er með ekka og getur ekki tjáð mér hvað á bjátar. Ég sest og tek hana í fangið. Á meðan streyma nemendur inn sem einnig vilja ólmir ná sambandi við mig. Erindin eru af ýmsum toga en þó öll mikilvæg. Einn er búinn að missa tönn, hjá öðrum er mamma á spítala, nokkrir eru að skipta um heimili í dag og hjá einum fór pabbi að heiman í gær. Þegar mér tekst að róa og hugga stúlkuna í fangi mínu kemur í ljós að það sem veldur henni svo miklum óróleika er að vinkona hennar er veik og því ekki í skólanum í dag. Við því verð ég að bregðast strax og koma á sambandi við annan félaga svo hún finni öryggi og traust. Ég þarf einnig að hlusta á hin börnin og bregðast við því sem á þeim brennur.
Þó heyri ég oft fullyrðingar um að kennarar hafi lítinn áhuga á að koma til móts við þarfir nemenda.

Það er markmið okkar kennara að veita nemendum einstaklingsbundið nám. Það þýðir ekki að allir fái einkakennslu en það þýðir að aðlaga þarf námsefni að mismunandi þörfum nemenda. Það er ögrandi og skemmtilegt verkefni en tímafrekt. Í skóla án aðgreiningar eru nemendur með sérþarfir. Mikill tími fer í að sinna þessum nemendum. Við kennarar þurfum að ígrunda reglulega hvað gengur vel og hvað ekki hjá nemanda með sérþarfir, vera lausnamiðaðir og útsjónarsamir. Láta okkur detta eitthvað nýtt og gagnlegt í hug, funda með sérfræðingum og foreldrum, fylla út skýrslur, útbúa, aðlaga eða finna verkefni við hæfi. Skapa viðunandi námsaðstæður og samræma vinnu og viðbrögð allra sem að nemandanum koma. Svo eru það allir hinir sem ekki teljast með sérþarfir, þeim má ekki gleyma.

Samt heyri ég sagt að kennarar kenni of lítið og hafi of mikinn tíma til undirbúnings.

Í dag er föstudagur, ég og nemendur erum að ræða dagatalið. Nú er helgarfrí framundan segi ég og sýni nemendum frídagana á dagatalinu. Allir fagna nema einn, hann brestur í grát. Ég vil ekki fara í frí, ég vil vera hér í skólanum segir hann grátandi. Mér bregður illilega. Ég kem hinum í vinnu svo ég geti sinnt nemanda mínum einslega. Nú verð ég stax að reyna að fá mynd af heimilisaðstæðum - aftur. Ef til vill þarf að senda tilkynningu til yfirvalda - aftur. Ég reyni að kalla saman alla þá starfsmenn sem að nemandanum koma eins fljótt og auðið er eftir kennslu en það er ekki hlaupið að því. Kennarar eru ýmist í teymisvinnu, á fundi eða að sinna öðrum bráðum tilvikum hjá sínum umsjónarnemendum. Aðrir starfsmenn hafa flestir lokið störfum í dag eða hafið störf í skólavistun. Af hverju vill barnið ekki fara heim? Hvað ætli sé í gangi á heimilinu? Ég fer í helgarfrí en hugur minn er hjá nemanda mínum, mér líður ekki vel. Er ég að bregðast?

Ég heyri svo oft fullyrt að skólinn og kennarar bregðist nemendum.

Ég er í skemmtilegasta starfi í heimi. Börn eru lífsglöð og krefjandi. Þau eiga rétt á því að finna að við sem störfum með þeim getum veitt þeim þá athygli og gefið þeim þann tíma sem þau þurfa. Þau eiga rétt á því að við leggjum okkur fram um að kynnast þeim vel, þekkja aðstæður þeirra og áhugamál og séum vakandi yfir velferð þeirra. Við verðum og eigum að bregðast rétt og fljótt við ef okkur grunar að eitthvað bjáti á í lífi þeirra.

Þó heyri ég að það þurfi að stækka umsjónarhópa.

Ert þú í starfi þar sem þeir sem þú ert að vinna með faðma þig innilega. Ert þú í starfi þar sem þeir sem þú ert að vinna með segja að þú sért frábær? Ert þú í starfi þar sem þeir sem þú ert að vinna með segja þér að þeir elski þig meira en ömmu sína?
Ég er í þannig starfi - það eru þeir sem ég vinn með, nemendur mínir og frábært samstarfsfólk, sem halda mér í kennslu í grunnskóla þrátt fyrir starfsaðstæður sem löngu eru komnar að þolmörkum. Viðurkenningu og þakklæti fyrir mín störf fæ ég frá nemendum mínum. Skammir fæ ég í þjóðfélaginu, ekki síst í fjölmiðlum. Þeir sem tala starf mitt niður með sleggjudómum og alhæfingum þekkja ekki til þess sem fram fer í grunnskólum landsins.

Veist þú hver verkefni grunnskólans eru, hvernig starfsaðstæður eru eða hvaða starf fer þar fram?

Rut Indriðadóttir
Höfundur er grunnskólakennari í Brekkuskóla á Akureyri

Sif Konráðsdóttir

Hræðsluáróður Landsnets standist enga skoðun

Sif Konráðsdóttir, lögmaður, náttúruverndarunndandi og landeigandi, sem hefur hagsmuna að gæta hvort Landsnet leggur loftlínu eða jarðstreng um Blöndulínu 3 er nýkomin heim eftir vettvangsferð til ... Lesa »

Við afhendingu viðurkenningana

Lofsvert lagnaverk í Hofi

Lagnafélag Íslands veitti Menningarhúsinu Hofi, hönnuðum og iðnaðarmönnum sem unnu við byggingu þess, viðurkenningar fyrir "Lofsvert lagnaverk" árið 2012. Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, ... Lesa »

Kristján Rúnar fann Karamellukrukkuna. Hann naut aðstoðar frænku sinnar Sigrúnar Maríu.

Leitin að Karamellukrukkunni

Leitin að Grenndargralinu er löng og ströng. Hún nær yfir 10 vikna tímabil, frá september til nóvember. Skapast hefur hefð fyrir því að leita að Karamellukrukkunni um miðbik Leitarinnar til að brjóta ... Lesa »

veitingastaður-við-vatn

Franskt kaffihús við Ólafsfjarðarvatn – Af hverju ekki?

Af hverju nýta Ólafsfirðingar sér ekki kosti Ólafsfjarðarvatns til eflingar menningartengdrar ferðamennsku á sumrin? Ólafsfjörður er fallegur staður en má vissulega muna fífil sinn fegurri. Síldin er ... Lesa »

pink

Bleik messa á sunnudagskvöldið

Bleik messa verður haldin í kvöld kl. 20:30 í Akureyrarkirkju. „Tilgangurinn er fyrst og fremst sá að koma saman, deila reynslu, trú, von og kærleika,“ segir í tilkynningu. Um tónlist sjá ... Lesa »

Tinni og félagar komu til Akureyrar með rannsóknarskipinu Aurora.

Skip nasista og teiknimyndafígúra heimsækja Akureyri

Stöðugt fjölgar komum skipa af ýmsum stærðum og gerðum til Akureyrar yfir sumartímann. Ákveðin stemning ríkir í bænum þegar risastór skemmtiferðaskip á borð við Albatros liggja við bryggju. ... Lesa »

Sinfóníuhljómsveit Færeyja

Frændur vorir góðir

Á Færeyjum búa um 50.000 manns. Í Þórshöfn nokkuð innan við 20.000. Ekki mikill mannfjöldi hvorki á landsvísu né í höfuðstaðnum. En Færeyingar, frændur vorir og vinir bestir á meðan þjóða, eru ... Lesa »

Silja Björk

Faðir vor

Hvað veldur þessum endalausa vítahring að sífellt fleiri Íslendingar sem eiga við geðræn vandamál að stríða, týnast í kerfinu og hlaupa á undan svörtu hundunum allt sitt líf? Hvað veldur því að ... Lesa »

IMG_1482-3

Sveppahálfmánar

Dásamlegir hálfmánar úr smjördeigi fylltir með sveppum. Í uppskriftina notaði ég villisveppi en þú getur notað venjulega flúðasveppi, það er meira að segja hægt að skella í þetta grænmetisafgöngum úr ... Lesa »

Gamla vindmyllan í Grímsey.

Enn verður reynt að nota vindorku í Grímsey

Allt rafmagn sem notað er í Grímsey er búið til í díselrafstöð og kostar stórfé, bæði fyrir notendur og ríkið því olían er talsvert niðurgreidd. Þessu fylgir líka mengun. Þetta kom fram í ... Lesa »

Í verbúðinni á Akureyri. Ólafur Gunnarsson sjómaður segist vonast til þess að opinber umfjöllun um hættulegar og illsjáanlegar kræklingalínur verði til þess að hreinsun
fari fram eða merkingar verði bættar.

Stórhættulegur sóðaskapur

Ólafur Gunnarsson sjómaður sem stundar frístundaveiði í Eyjafirði, gagnrýnir harðlega að fjöldinn allur af kræklingalínum liggi út um allt í sjónum vestan megin í hluta Eyjafjarðar. Um sóðaskap sé að ... Lesa »

Rut Indriðadóttir

Afi minn er rosalega gamall en hann er samt ekki dauður

„Afi minn er rosalega gamall en hann er samt ekki dauður“ segir nemandi á yngsta stigi við mig. Þetta er einstakur nemandi með sérþarfir. Honum líður illa í stórum hópi þar sem áreiti er mikið. En ... Lesa »

bjorgun

Rjúpnaskyttur fundnar en fleiri þurftu aðstoð

Björgunarsveitir fundu nú fyrir skömmu rjúpnaskytturnar tvær sem leitað var á Höfuðreirarmúla. Voru mennirnir þá staddir austan undir Lambafjöllum og reyndust báðir heilir á húfi. Þetta er þó ekki ... Lesa »

215128_137292596355101_2734689_n

Jazzmaskínan gangsett

Jazzklúbbur Akureyrar heldur fyrstu tónleika vetrarins á Örkinni hans Nóa í kvöld, föstudaginn 25. október, kl. 21:00. Það er hljómsveitin JazzMaskínan sem slær fyrstu tóna vetrarins. Hljómsveitina ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Lof fá kúabændur í Eyjafirði fyrir að dreifa mykju á túnin sín svo fjörðurinn „ilmar alveg dásamlega þessa fallegu lognkyrru daga,“ segir kona á Akureyri. „Ljúfsár tregi læðist inní minn aldraða huga ... Lesa »

Ragnheiður Skúladóttir, leikhússtjóri og Inga Björk Svavarsdóttir, sölustjóri Saga Travel við lok undirskriftar

Saga Travel og Leikfélag Akureyrar ganga til samstarfs

Saga Travel og Leikfélag Akureyrar hafa undirritað samning sem felur í sér samstarf í menningartengdri ferðaþjónustu. Meðal verkefna sem fyrirtækin sameinast um eru hvataferðir, stuttar og langar ... Lesa »

Rjúpa

Tveggja rjúpnaskytta leitað

Björgunarsveitir frá Húsavík, Reykjadal og Aðaldal hafa verið kallaðar út til leitar að tveimur rjúpnaskyttum sem eru villtar á Höfuðreiðarmúla norður af Þeistareykjum. Mennirnir hringdu í Neyðarlínu ... Lesa »

1383999_1431831343705741_1455573196_n

Júlli og Gréta opna nýtt kaffihús í Bergi

Á morgun, fyrsta vetrardag, opna hjónin Júlíus Júlíusson og Gréta Arngrímsdóttir nýtt kaffihús og Bistro í Menningarhúsinu Bergi á Dalvík. Frá þessu segir á vefnum veitingageirinn.is. Fastur ... Lesa »

Héraðsdómur Norðurlands Eystra

Sólginn í Smirnoff

Akureyringur hefur verið dæmdur í 30 daga skilorðsbundið fangelsi eftir að hann stal tveimur vodkaflöskum í vínbúð ÁTVR á Akureyri. Fyrra tilvikið var föstudaginn 24. maí þessa árs þegar hann stal ... Lesa »

Framkvæmdir eru hafnar við hundasvæði sem kosta mun Akureyrarbæ fimm milljónir króna.

Tímabundið hundasvæði á háskólalóð við Borgir

Framkvæmdir eru hafnar við hundasvæði við Norðurslóð, nálægt háskólasvæðinu á Akureyri. Gert er ráð fyrir að kostnaður við mann/hundvirkið verði um fimm milljónir króna. Oddur Helgi Halldórsson, ... Lesa »

Það var stund milli stríða þegar ljósmyndari blaðsins skoðaði grunn nýja hótelsins við suðurhluta Mývatnssveitar sl. sunnudag. Hótelið stendur á hæð og má ætla að útsýni hótelgesta verði tilkomumikið.

Stórfjölgun hótela sögð skapa 500 ferðamannastörf í Mývatnssveit

Hótel Laxá sem nú er í byggingu í landi Arnarvatns í suðurhluta Mývatnssveitar er fyrsta hótelið af fjórum í undirbúningi í sveitinni. Þetta segir Pétur Snæbjörnsson hótelhaldari í Reynihlíð. Hann ... Lesa »

20953429_s

Ákall um samvinnu milli aðila

Umræða um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar hefur nú staðið yfir um skeið. Líkt og vanalega er saumað verulega að heilbrigðiskerfinu þótt ráðamenn segi að ekki sé meiri niðurskurður í farvatninu nú ... Lesa »

Emil og Ída

Ofurhetjuleikhús­ið í Freyvangi

Emil er óþekkasti strákur í öllum Smálöndum ef ekki allri Svíþjóð. En fjölskyldan hans elskar hann – alveg eins og hann er. Við elskum líka öll sögurnar af Emil – alveg eins og þær eru. Nýleg ... Lesa »

Arnar Már Arngrímsson

Kvikar myndir og allskyns tungur (og ekki svo dulin auglýsing)

Eitt er það tækniundur sem ég lofa á þessum síðustu og bestu tímum. Það er að geta valið um aðskiljanlegustu tungumál og texta þegar ég horfi á myndir á DVD. Best þykir mér að velja texta á sama ... Lesa »

Evrópskir kvikmyndadagar á Akureyri

Frítt í bíó!

Evrópskir kvikmyndadagar verða nú haldnir í annað sinn á Akureyri og hefjast í dag, 24. október. Það er kvikmyndaklúbburinn KvikYndi sem stendur fyrir hátíðinni í samstarfi við Evrópustofu, Sambíó ... Lesa »

Skoða meira