Í könnun sem samtökin Landvernd létu gera kemur fram að 43,6 prósent svarenda andvíg virkjanaframkvæmdum í Bjarnarflagi en 30,5 prósent sögðust hlynnt framkvæmdinni.
Aðalfundur Landverndar var haldinn í gær og ályktaði fundurinn um málefni Mývatns og Bjarnarflagsvirkjunar. Landvernd hvetur stjórn Landsvirkjunar og sveitarstjórn Skútustaðahrepps til að hlífa lífríki Mývatns og hætta við byggingu virkjunarinnar fyrir fullt og allt.
„Einstakt lífríki Mývatns skapar því sérstöðu á heimsvísu og í verndaráætlun fyrir Mývatn og Laxá segir að það sé skylda núlifandi kynslóðar að varðveita sérstöðu svæðisins og þar með að tryggja komandi kynslóðum sama aðgengi og svipaða upplifun og við getum notið nú í dag,“ segir í ályktuninni.
Í sömu könnun kemur fram að helmingur landsmanna er andvígur því að fleiri álver verði reist á Íslandi, eða 51,3 prósent en 30,9 prósent voru hlynnt fleiri álverum. Það var Capacent-Gallup sem vann könnunina.


