Þann 6.júní útskrifaði SÍMEY um 100 þátttakendur sem lokið höfðu námsleiðum á vegum Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Námsleiðirnar sem nemendur voru að ljúka voru Menntastoðir, Grunnmenntaskólinn, félagsliðabrú, leikskólaliða-og stuðningsfulltrúabrú og skrifstofuskólinn.
Einnig fóru um 40 þátttakendur í gegnum raunfærnimat iðngreina sem unnið var í samstarfi við IÐUNA fræðslusetur. Þátttakendur komu úr hinum ýmsu greinum; húsasmíði, matartækni, bifvélavirkjun, bílamálun, bifreiðasmíði, vélvirkjun, stálsmíði og rennismíði. Alls luku þessir þátttakendur í raunfærnimati um 1000 einingum á framhaldsskólastigi. Valgeir Magnússon, verkefnastjóri hjá Símey segir raunfærnimatið mikilvægan áfanga. „Nú fá þessir nemendur starfsreynslu sína metna og það er afskaplega mikilvægt fyrir þá.“
Föstudaginn 7. júní voru útskrifaðir nemendur í staðnámi Háskólabrúar og ÍAK einkaþjálfun á Akureyri. Að þessu sinni útskrifuðust 11 manns úr Háskólabrú Keilis og níu ÍAK einkaþjálfarar. Alls hafa þá útskrifast 98 manns síðan Keilir hóf að bjóða upp á staðnám á Akureyri árið 2010, jafn margir aðilar úr báðum deildum.

