Stöðufundi hjá aðgerðastjórn leitarinnar að minkaskyttunni í og við Hjaltadalsá var að ljúka. Ákveðið hefur verið að halda leitinni áfram, a.m.k. fram á kvöld og verið er að kalla út björgunarsveitir til að leysa af þann mannskap sem staðið hefur vaktina í dag. Annar stöðufundur er áætlaður í kvöld klukkan 23:00 þar sem tekin verður ákvörðun um framhaldið.
Í dag hafa björgunarsveitir slætt ána út í sjó. Einnig hafa verið gerðar tilraunir með ýmis konar reköld til að sjá hvernig þau haga sér í ánni og hvert straumurinn ber þau. Björgunarfélag Akraness er á leið á staðinn með bát sem útbúinn er með sónarmyndavél og mun hann verða notaður við leit í kvöld.