Blóðgjafafélag Íslands og Blóðbankinn halda alþjóða blóðgjafadaginn hátíðlegan á morgun, fimmtudaginn 13. júní. Tilgangur þessa dags er að vekja athygli á blóðgjöfum og því mikilvæga hlutverki sem þeir gegna ásamt því að hvetja sem flesta til þess að gefa blóð.
Blóðbankinn á Akureyri verður opinn frá kl: 8:15 – 14:00 og fá blóðgjafar og gestir köku í boði Bakarísins við brúna og blóðgjafar fá gjöf frá Blómabúð Akureyrar.

