Leitin að minkaveiðimanninum sem féll í Hjaltadalsá í gær hefur enn engan árangur borið. Um 50 manns frá björgunarsveitum í Eyjafirði og Húnavallasýslum hafa leitað í alla nótt. Nú hafa gönguhópar leitað árbakkann frá þeim stað sem maðurinn sást síðast og niður að sjó nokkrum sinnum og búið er að slæða ána. Auk þess hefur báti verið slakað rólega niður hana svo hægt sé að leita árbotninn með stöngum en áin og straumhörð og gruggug og ekkert sést til botns. Bátar hafa einnig siglt frá ósnum í átt að Hofsósi og fylgja þar gruggugu árvatninu sem er vel sýnilegt þegar það fellur í sjó.
Klukkan átta er gert ráð fyrir að þeir björgunarsveitamenn sem nú eru við leit fari í hvíld og aðrir taki við. Í hádeginu verður staðan metin með lögreglu og ákvörðun um framhaldið tekin.