Þriðja barn Álfhildar Leifsdóttur og Sölva Sigurðssonar sem búsett eru á Sauðárkróki kom í heiminn í sjúkrabíl í Öxnadalnum í morgun kl. 7:17. Frá þessu segir á vefnum feykir.is en þar er haft eftir föðurnum að sjúkraflutningamennirnir og ljósmóðirin hafi staðið sig frábærlega.
Álfhildur og Sölvi komust ekki á fæðingadeildina á Akureyri í tæka tíð og stúlkan kom í heiminn í sjúkrabílnum en á Facebook síðu sinni segir Sölvi að mæðgnunum heilsist vel og föðurnum enn betur.




