Það er margt sem skiptir máli þegar skapa á samfélag og ná árangri. Velferð er stórt hugtak og nær í sjálfu sér utan um allt samfélagið. Við vitum öll að vegna aðhaldsaðgerða er komið að þolmörkum víða og álag á starfsfólk er mikið, sérstaklega í velferðargeiranum. Sem betur fer höfum við nú tækifæri til að vinna okkur upp á við aftur þó enn þurfi að gæta aðhalds. Ég trúi því að við getum sameinast um að velferð, í hinu stóra samhengi, eigi að vera í fyrsta sæti og samfélagið taki mið af því. Það á að vera grundvallaratriði í byggðastefnu okkar að aðstaða fólks sé sem jöfnust óháð búsetu.
Menntun og framfarir
Í nútímasamfélagi er menntun forsenda framfara og nýsköpunar. Því er afar mikilvægt að jafna fjárhagslegan aðstöðumun til náms á öllum skólastigum. Við ávöxtum mannauðinn með aukinni menntun sem stuðlar að betra mannlífi og betra samfélagi og helst einnig í hendur við hagvöxt.
Á síðustu fjórum árum hefur ótrúlega margt áunnist er varðar menntun, bæði ungs fólks og fullorðinna. Sett voru lög um fullorðinsfræðslu árið 2010 og ýmis verkefni verið stofnsett, t.d. Nám er vinnandi vegur. Markmiðið er að bæta aðgengi íbúa að námi og stuðla að auknu samstarfi og samþættingu menntunar, rannsókna, fræðastarfs og atvinnuþróunar. Nokkrir fjölbrautarskólar hafa hafið dreifmenntakennslu, sem ég tel góðan kost, til að brúa bilið milli landshluta. Það gerir einstaklingum kleift að stunda það nám sem þeir kjósa hvar sem þeir eru staddir.
Vinstri græn hafa sýnt í verki að við leggjum áherslu á að ungt fólk í landinu geti tekið sem mest af grunnnámi framhaldsskólans sem næst sinni heimabyggð enda bæði samfélagslega- og fjárhagslega hagkvæmt fyrir alla aðila. Börn og ungt fólk eru ekki bara fullorðnir framtíðarinnar heldur er forsenda þess að þau geti lært og þroskast að þau hafi áhrif á umhverfi sitt og taki þátt í því.
Fjölbreytt atvinnulíf
Við uppbyggingu fjölbreytts atvinnulífs skiptir smáiðnaður miklu máli og mikilvægt er að hlúa að vaxtarsprotum. Fjölþætt menntun, þekking og rannsóknir skapa þar undirstöðuna og gefa tækifæri á að auka útflutningstekjur þjóðarinnar og stuðla að hagvexti án þess að gengið sé á höfuðstól náttúrunnar.
Fyrir landsbyggðina skiptir mestu að eyða aðstöðumun, sem er atvinnu- og mannlífi þar mótdrægur, hvort sem um er að ræða samgöngur, flutningskostnað, lakari fjarskipti, dýrari orku eða fjarlægð frá sérhæfðri þjónustu. Eitt af meginhlutverkum ríkisvaldsins í atvinnumálum er að viðhalda öflugu stoðkerfi, sem sinni þörfum þeirra sem eru að stíga sín fyrstu spor í atvinnurekstri. Að baki stoðkerfinu verða að vera öflugir rannsóknar og þróunarsjóðir með umtalsvert fjármagn. Mjög mikilvægt er að almenningur hafi aðgang að slíkum sjóðum án þess að þurfa að leggja í „meiriháttar fjárfestingu“ við að sækja um fyrirgreiðslu.
Það er afar mikilvægt að samfélagið byggist á fjölbreyttu atvinnulífi. Það verður alltaf til fólk með mismunandi færni og því ástæða til að ýta undir að fólk geti breytt færni sinni í störf sjálfu sér og samfélaginu til góða. Fjölbreytt atvinnulíf leiðir af sér fjölbreytileika í mannlífi, víðsýnna og betra samfélag. Vinstri græn sækjast nú eftir brautargengi til að fylgja eftir því góða starfi sem grunnur hefur verið lagður að sl. fjögur ár.
Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir
Höfundur skipar 2. sæti á lista Vinstri grænna í Norðausturkjördæmi