Kirkjulistavika í Akureyrarkirkju byrjaði með glæsibrag í gær. Hátíðarmessa, opnun myndlistarsýningar og stórglæsilegur fuglakabarett, þar sem 300 manns nutu magnaðra tónleika barnakóra, stúlknakórs og hljómsveitar.
Í hádeginu í dag munu Margrét Árnadóttir sópran og Ívar Helgason píanóleikari flytja lög eftir Sigfús Halldórsson og fleiri. „Hjónin Margrét og Ívar hafa komið með ferska strauma, hlýju og gleði inn í tónlistarlífið á Akureyri. Einlægni og ljúfmennska einkenna flutning þeirra og má því lofa notalegum tónleikum í dag,“ eins og Eyþór Ingi Jónsson, organisti Akureyrarkirkju orðar það.
Aðgangur að tónleikunum er ókeypis en hægt er að kaupa léttan hádegisverð frá Kaffi Ilmi í Safnaðarheimilinu.