Lundargata er ein elsta gatan á Oddeyrinni og þar standa mestmegnis látlaus og lágreist timburhús frá lokum 19.aldar. Þessi hús eru að öllu jöfnu stórglæsileg og til mikillar prýði enda hefur Lundargatan varðveislugildi sem heilsteypt götumynd. Húsið hér á myndinni er Lundargata 8 og stendur á horni Lundargötu og Gránufélagsgötu.
Húsið reistu þeir Jóhann Ólafsson og Sigurður Kristjánsson árið 1898, og var húsið frá upphafi tveir eignarhlutar. Lundargata 8 er því jafn gamalt Emil Thoroddsen (d.1944) tónskáldi og Guðmundi G. Hagalín (d.1985) rithöfundi.
Húsið er einlyft timburhús á háum steyptum kjallara með portbyggðu risi og litlum forstofubyggingum á göflum. Húsið skiptist í miðju í tvo eignarhluta og er gluggaskipan “symmetrísk”. Kvistur mun hafa komið á húsið árið 1926.
Um svipað leyti og kvistur var byggður hefur núverandi klæðning, steinblikk verið sett á en það hafa verið hæg heimatökin fyrir eigendur hússins að nálgast klæðninguna því sá sem flutti hana inn, Gunnar Guðlaugsson, bjó hinu megin við Gránufélagsgötuna í Lundargötu 10!
Ekki hefur verið byggt við húsið en það sem mætti einmitt teljast sérstakt við húsið er að íbúðaskipan hefur haldist óbreytt frá upphafi og hvað húsið er að miklu leyti svipað og í upphafi, að frátöldum kvistinum. Húsið er líkast til vel viðað og vel byggt frá upphafi og hefur hlotið gott viðhald og virðist í frábæru standi. Þessi mynd er reyndar orðin 8 ára gömul, tekin 21.janúar 2005 en húsið hefur ekki mikið breyst síðan þá - frekar en síðustu áratugina.
Arnór Bliki Hallmundsson
Ps. Ég mun hér eftir taka upp þann sið að geta nokkurra þjóðþekktra einstaklinga sem fæddust sama ár og húsin voru byggð, bæði til gagns og gamans og einnig kann eflaust mörgum þetta setja byggingarártölin í skemmtilegt samhengi.
Heimildir: Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995). Oddeyri Húsakönnun. Minjasafnið á Akureyri.


