Félagar úr björgunarsveitinni Ægi á Grenivík sem voru við æfingar í Þorgeirsfirði í gær fundu þrjár kindur á lífi en þeirra hefur verið saknað síðan óveðrið gekk yfir Norðurland í september í fyrra. Sagt er frá þessu á fréttavefnum 641.is
Kindurnar eru frá bænum Grýtubakka í Höfðahverfi, í eigu Þórarins Inga Péturssonar bónda og formanns Landssambands íslenskra sauðfjárbænda. Björgunarsveitarmennirnir settu kindurnar á sleða og fluttu þær heim að Grýtubakka þar sem Þórarinn tók þeim fagnandi og segir þær vera ótrúlega vel á sig komnar þrátt fyrir að hafa gengið úti í tæpa sjö mánuði.
Nær snjólaust hefur verið nyrst í Þorgeirsfirði í allan vetur og er það vafalaust ástæða þess að féð var svona vel á sig komið en margoft var búið að leita að kindum á þessu svæði, bæði í haust og eftir áramót, en þessar hafa greinilega farið fram hjá leitarmönnum.