Nýverið var sett á stofn tilraunaverkefni Velferðarráðuneytisins og öldrunarheimilisins Hrafnistu í Reykjavík sem hefur það markmið að gera hjónum kleyft að búa saman á Hrafnistu þó einungis annað hjóna þurfi af heilsufarsástæðum að búa á hjúkrunarheimili.
Á Akureyri er nú unnið að sambærilegu verkefni en Halldór Sigurður Guðmundsson, framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar, segir að í nokkurn tíma hafi verið unnið að málinu. „Við erum þessa dagana að fara yfir það sem snýr að kostnaðarþátttöku og öðrum skilmálum fyrir þann sem flytti inn og ekki nýtir þjónustu stofnunarinnar til fulls. Stefnan er að geta orðið við óskum um slík búsetuúrræði, jafnvel innan ekki langs tíma,“ segir Halldór
Halldór segir búsetumál aldraðra hjóna sem búi við ólíkt heilsufar geta verið flókin og því muni hvert mál fyrir sig verða að skoðað sérstaklega með lausnir í huga. „Við eigum möguleika og jafnvel rými sem henta, t.d. raðhúsaíbúðir á lóð Hlíðar, en það er ekki alltaf svo að íbúð eða herbergi séu laus þegar á þarf að halda svo við munum þurfa að aðlaga lausnir að hverju tilviki.“
Halldór segir það þurfa að vera skýrt hvernig bregðast á við ef sá sem hefur þurft þjónustu á öldrunarheimili fellur frá, en eftir situr maki inni á stofnun sem hann þarf ekki á að halda. Í tilraunaverkefni Hrafnistu er þess krafist að maki sem flytur inn á heimilið hafi fast aðsetur eða lögheimili annarsstaðar og sé tilbúinn til að flytja aftur af hjúkrunarheimilinu, jafnvel með stuttum fyrirvara krefjist aðstæður þess, t.d. í kjölfar andláts maka síns. „Hjá Öldrunarheimilum Akureyrar höfum við nálgast málin út frá þeirri meginforsendu að taka mið af þeim mannréttindum að hjón eigi kost á að búa saman þegar heilsufar og aðstæður mæla með því enda sé hugað að félagslegum-, líkamlegum- og sálrænum þörfum og sjálfsákvörðunarrétti beggja. Þá þarf líka hafa í huga það húsnæði sem er til ráðstöfunar hverju sinni“ sagði Halldór.