Það líður senn að kosningum og mörg ný framboð hafa litið dagsins ljós, eitt af þeim er Regnboginn regnbogasamtök sen standa fyrir sjálfstæði Íslands og fullveldi.
Okkur sem standa að framboðinu í norðausturkjördæmi langar að koma á framfæri nokkrum stefnumálum okkar fyrir þessar kosningar.
Hætta aðildarviðræðum við evrópusambandið strax.
Skipta Íslandi upp í 5 stjórnsýslusvæði sem hvert um sig ræður sínu aflafé, en greiðir síðan ákveðin skatt í ríkissjóð.
Setja þingmönnum siðareglur um að allir starfi saman sem einn maður að erfiðum verkefnum sem varða þjóðarhag ,óháð flokkum og í bróðerni.
Bæta ráðstöfunartekjur heimilana í landinu, með því að stórhækka skattleysismörk, með skattlagabreytingu og koma þannig hagkerfinu aftur af stað.
Banna kennitöluflakk með lögum.
Sameina lífeyrissjóðina í einn.
Leyfa yfirskuldsettum heimilum að skila húsnæðinu til lánastofnunarinnar og gera bankana og sjóðina ábyrga til jafns við skuldarann, án þess að til gjaldþrots komi, og fólki gert kleift að leigja aftur húsnæðið.
Regnboginn vill leyfa staðbundnar strandveiðar sem byggðaúrræði.
Við viljum stuðla að millilandaflugi frá fleiri stöðum en Keflavík, sem þegar er yfirsetinn á annatímum og dreifa þannig erlendum gestum okkar um landið og einnig í öryggissjónamiði með tilliti til eldgosa og öskufalls.
Styðja og efla íslenskan landbúnað ,vernda sérstöðu hans og hreinleika, koma lífrænni ræktun ínn í búvörusamninga, og sýna íslenskum landbúnaði þá virðingu sem honum ber.
Stórefla ferðaþjónustuna í kjördæminu og hefja strax undirbúning að bættri aðstöðu við áningarstaði ferðamanna og undirbúa nýja áningarstaði , við teljum að ferðaþjónustan sé best til þess fallin að vinna okkur út út skuldavanda ríkissjóðs, og langódýrasta leiðin.
Við viljum að ástæður hrunsins verði rannsakaðar til fullnustu og frá grunni, góðærið kom ekki til landsbyggðarinnar en við eigum og borga skaðann eins og aðrir.
Jafna orkukostnað með jöfnunargjaldi strax.
Baldvin H. Sigurðsson
Höfundur er oddviti Regnbogans í NA-kjördæmi