Undanfarna mánuði hefur verið unnið að útfærslu á skattafsláttarkerfi sem á að stuðla að aukinni fjárfestingu í litlum fyrirtækjum. Markmiðið er að stuðla að aukinni fjárfestingu í litlum fyrirtækjum í vexti og fjölga þannig störfum. Kerfið felur í sér skattafslátt til einstaklinga sem kaupa hlutabréf í slíkum fyrirtækjum. Skilyrði er að þau séu óskráð og stundi starfsemi á Íslandi. Með litlum fyrirtækjum er átt við fyrirtæki sem hafa færri starfsmenn en 50 og veltu undir 1,6 milljarði króna.
Meiri afsláttur er ef fjárfest er í fyrirtæki á landsbyggðinni. Í tillögunni er miðað við að einstaklingar sem fjárfesta í hlutabréfum í litlum óskráðum fyrirtækjum að hámarki 5 m.kr og að lágmarki 50 þús.kr. á ári fái 30% af þeirri fjárfestingu frádregna frá skattskyldum tekjum áður en til skattlagningar kemur en hlutfallið verði 40% fyrir fjárfestingar á landsbyggðinni.
Tillagan fer nú til kynningar hjá ESA. Skattafsláttarkerfi eins og þetta eru tilkynningaskyld til ESA og ekki er heimilt að hrinda þeim í framkvæmd fyrr en samþykki stofnunarinnar liggur fyrir.