Nemendur í fyrirtækjaáfanga eða fyrirtækjasmiðju í MA og VMA kynntu í gær á Glerártorgi þau fyrirtæki og vörur sem þau hafa verið að vinna að í áfanganum.
Framleiðslan var fjölbreytileg, eitt fyrirtæki var með boli með orðagríni, annað kanilsykur, hið þriðja rafbók fyrir börn, enn eitt hafði hannað bolta fyrir myndavélar, eitt framleiddi matreiðslurafbók og enn annað litlar myndir úr þæfðri ull.
„Grunnhugmynd að baki þessum áfanga er að efla skilning nemenda á fjölbreyttum fyrirtækjarekstri. Fjallað er um lögmál efnahagslífsins, mismunandi starfssvið og mikilvægi jákvæðra samskipta. Nemendurnir þróa viðskiptahugmynd og undirbúa stofnun sinna fyrirtækja. Stofnun fyrirtækjanna er fjármögnuð með sölu hlutabréfa og unnin viðskiptaáætlun. Síðan er fyrirtækinu ýtt úr vör. Áhersla er lögð á að allt er lýtur að fyrirtækinu sé eins raunverulegt og kostur er,“ segir á vef VMA.
Upphaflega stóð til að nemendur áfangans í VMA tækju þátt í fyrirtækjamessu í Smáralind 8.-10. mars sl., en af því gat ekki orðið vegna slæms veðurs og ófærðar og því var ákveðið að setja upp fyrirtækjamessu á Glerártorgi fyrir báða skólana. Þess má þó geta að ekki öll verkefnin voru fullsköpuð enda annirnar í skólunum tveim mis langt komnar.
Hér má sjá myndir frá fyrirtækjamessunni sem Hilmar Friðjónsson, kennari í VMA tók.