Það hefur komið fram í umræðunni síðustu daga að almenningur er farinn að upplifa að það öryggisnet sem á að vera til staðar, komi upp alvarleg veikindi, sem hálfgerðan gaddavír. Vísa ég þar í umfjöllun Kastljóss á RÚV máli mínu til stuðnings.
Á öllum stöðum í heilbrigðiskerfinu eru rukkuð ákveðin lámarksgjöld, sem síðan ættu að gefa af sér ákveðinn afslátt. En hvað veitir afslátt ? Samkvæmt reglugerð er það eftirfarandi: Heimsókn á heilsugæslustöð eða til heimilislæknis, vitjanir lækna, koma á slysadeild, göngudeild og bráðamóttöku sjúkrahúsa, koma til sérgreinalækna utan sjúkrahúsa og til sérgreinalækna á göngudeild sjúkrahúsa, rannsókna á rannsóknastofum, geisla- og myndgreininga og beinþéttnimælinga. Hér er til dæmis ekki inni öll þjálfun sem oftar en ekki er hluti af endurhæfingu eftir alvarleg slys eða veikindi.
Eins og margir vita eru lyf komin í nýjan afsláttarbúning og taka nú sjúkratryggðir þátt í lyfjakostnaði upp að ákveðnu hámarki. En stöldrum nú aðeins við. Sá sem veikist fær afslátt af lyfjum eftir að hafa borgað stóran hlut sjálfur til að byrja með. Þetta á einnig við um þjálfun, læknisheimsóknir og ýmiskonar rannsóknir. Samanlagt getur því hlutur venjulegs fólks numið hundruðum þúsunda króna áður en hið svokallaða öryggisnet fer að taka við.
Hér þarf að staldra við og spyrja sig spurninga. Af hverju vigta ekki allir hlutir jafnt; þjálfun, lyf og læknisheimsóknir? Væri það ekki eðlilegt?
Bergur Þorri Benjamínsson
Höfundur skipar sjötta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Norðausturkjördæmi.