Á Norðurlandi hafa fallið stór flekahlaup sl. daga og virðast sólin hafa komið flestum af stað en mikil snjósöfnun var í suðvestanátt í gær á Tröllaskaga og er sá snjór mjög óstöðugur samkvæmt tilkynningu frá Veðurstofunni. Einnig féll flekahlaup í Köldukinn í nýjum foksnjó á laugardag.
Veik lög eru í snjóþekjunni á utanverðum Tröllaskaga, milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar og flekahlaup hafa sést þar síðustu daga. Flóðin féllu flest í giljum og brekkum sem NA-áttin hefur safnað í og vísa mót V,SV,S,SA,A. Éljagangur hefur verið síðustu daga og veðurspá gerir ráð fyrir áframhaldandi snjókomu.
Sjá nánar á vef Veðurstofunnar