Blessuð sé minning maðksins – veiðisaga

Blessuð sé minning maðksins – veiðisaga

Sigfús Aðalsteinsson

Minningar eru skrýtinn hlutur. Því lengra sem líður því betur man maður það sem liðið er. Æskuslóðirnar mínar eru í Eyjafjarðarsveit.

Gekk með færið yfir bleikjurnar
Þegar ég var barn fór ég oft að renna fyrir silung í Eyjafjarðará. Þar var hægt að fá veiðileyfi á viðráðanlegu verði og þar var og er alltaf gott veður. Ég man vel þegar við bræðurnir vorum að veiða stuttu neðan við ármynni Núpár. Þetta var um miðjan ágúst og veður hið besta, sól og stilla. Þar fundum við nokkrar bleikjur og mig minnir að ég fengi þá fyrstu á maðk en svo fengi Halldór bróðir minn sjö á flugu. Þá var mér misboðið og kastaði eins langt út og ég gat og gekk niður í strauminn með færið og þar með yfir allar bleikjurnar. Halldóri fannst þetta víst ekki gáfuleg veiðiaðferð en stuttu eftir að straumurinn greip færið þá greip vænn sjóbirtingur maðkinn og ég landaði honum. Hann vó rúm sex pund. Bleikjurnar voru allar eitt og hálft til tvö pund. Það lyftist á mér brúnin og við fórum heim með góðan afla eftir hálfan dag. Seinni partinn hófum við veiðar á sama stað og náðum nokkrum fiskum til. Mig minnir að ég fengi tvo minni sjóbirtinga og Halldór eitthvað af bleikju. Eftir þetta fékk ég oft fiska þarna. Mikið oftar settist ég þó þarna niður með nesti og horfði yfir Möðruvallaplássið og langt upp í Sölvadalinn. Þarna sagði faðir minn mér síðar að Sölvadalur héti eftir gelti sem Helgi magri hefði misst í land við Galtarhamar/Festarhamar, ekki langt frá Kaupangi, ásamt einni gyltu og hann fann þau síðar fram í Sölvadal en þá voru þar 70 svín saman. Nú liðu mörg ár og þá fór ég að ræða þennan veiðistað við Halldór og þá sagði hann að hann hefði eiginlega ekki ætlað eftir hádegi því veðrið var svo leiðinlegt, sunnan hvassviður og rigning.

Sonurinn landar 9 punda sjóbirting
Þegar ég fluttist aftur norður þá átti ég dreng sem hafði gaman af að fara og veiða á bökkum Eyjafjarðarár. Ég nýtti þá tækifærið til að troða á hann staðarþekkingu, þeirri hinni sömu og ég lærði þar einum mannsaldri fyrr. Það var einu sinni að við vorum að veiða skömmu fyrir hádegi lítið eitt neðan við Espihól. Þarna er djúpur hylur og grynningar með töluverðum straumköstum neðan við. Ég var að kasta flugu og þetta var seinni hluta ágústmánaðar. Drengurinn var farinn að kvarta um kulda og ég sagði honum að kasta um stund og sest sjálfur niður. Hann kastar en verður ekki var og kvartar áfram enda höfðum bæði ég og Sigurður sem var með hina stöngina fengið tvær bleikjur hvor. Ég greip af honum stöngina og gekk nokkuð uppeftir ánni með hann með mér. Ég beitti nýjum maðki og setti flotholt á áður en ég kastaði út í miðjan hylinn og rétti honum stöngina og sagði honum að labba með flotholtinu niður að bíl og þá mætti hann fara inn í bílinn og ylja sér. Ég stökk nú niður eftir og hellti kaffi í bollann og greip kexköku. Ég ræddi nú við Sigurð sem kastaði flugunni vilt og galið. Við spjölluðum um fjöllin og bæina þar til drengurinn var kominn niður á grynningar og strauminn með færið. Þá sagði Sigurður: “Flotið er löngu sokkið”. Ég svaraði að bragði: “Þetta er búið að vera fast í botni lengi.” Þá tók stærðarfiskur sig upp út í miðri á með flotholtið í eftirdragi. Mér varð nokkuð um og kastaði bollanum og kexinu frá mér í grasið og tók nokkur stökk niður að drengnum sem var þá búinn að ná sambandi við fiskinn. Eftir nokkra stund landaði hann 9 punda sjóbirting. Ég rölti uppeftir og tók saman kaffidótið en ekki fann ég kexkökuna þrátt fyrir mikla leit og leið ekki vel með að skilja hana eftir en þó varð svo að vera. Þegar við nálguðumst Akureyri þrífur Sigurður aftan í úlpuna mína og kemur með hálfa kexköku en ég hafi hent henni ofan í hettuna í flýtinum.

Drengurinn minn sem nú er 19 ára er sjálfsagt af síðustu kynslóð þeirra sem læra að þekkja staðhætti í Eyjafirði af föður sínum meðan þeir veiða á bökkum Eyjafjarðarár. Nú er búið að banna alla maðkveiði af því að vitrir menn telja að börn veiði meira á maðk en fullorðnir á flugu.

Sigfús Aðalsteinsson

Það á að troða inn á okkur háspennulínu

„Ég held að það eigi að troða inn á okkur háspennulínu bak við tjöldin, við fáum ekki að skipuleggja í okkar landi og höfum aldrei komist þangað sem við viljum,“ segir Sigurður Sigurðsson ... Lesa »

Bakki við Húsavík.

Fjárfestingasamningur um kísilver á Bakka undirritaður

  Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra undirritaði í gær fyrir hönd íslenska ríkisins fjárfestingarsamning við þýska félagið PCC vegna byggingar og reksturs kísilvers á ... Lesa »

Jarðskjálfti upp á 3,8 varð í mynni Eyjafjarðar

Jarðskjálfti að stærð 3.8 varð kl. 19:40 í kvöld fyrir mynni Eyjafjarðar. Upptök skjálftans urðu á sömu sprungu og hefur verið virk síðan 25. september, en á henni hafa mælst hundruðir skjálftar sl. ... Lesa »

Ríkisstörf sópast burt

Þrátt fyrir að störfum á vegum ríkisins hafi fjölgað á landsvísu eftir hrun hefur ríkisstörfum stórfækkað á Norðurlandi. Þetta sýnir áður óbirt skýrsla sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands hefur unnið ... Lesa »

Björn Þorláksson

Þess vegna þarf Rúv að standa sig

Það eru góðar fréttir fyrir jafnræðisviðleitni í byggðamálum að Ríkisútvarpið hafi ákveðið að sinna skyldum sínum með því að senda Þorgerði E. Sigurðardóttur leiklistargagnrýnanda menningarþáttarins ... Lesa »

Langþráður draumur orðinn að veruleika

Miklar umbætur eru nú á döfinni í þjónustu við fólk með geðraskanir á Akureyri og nágrenni því Geðverndarfélag Akureyrar hefur tekið á leigu húsnæði á fjórðu hæð í Hafnarstræti 95 þar sem ... Lesa »

Jóhanna Sigurðardóttir 100 ára

Jóhanna Sigurðardóttir íbúi á Öldrunarheimili Akureyrarbæjar í Grenihlíð átti 100 ára afmæli í gær, 1. október. Í tilefni dagsins var boðið til veislu á heimilinu. Í veisluna mætti meðal annars ... Lesa »

Forstjóri FSA ósáttur við fjárlagafrumvarp

„Þær upphæðir sem okkur eru ætlaðar til reksturs sjúkrahússins eru okkur vonbrigði,“ segir Bjarni Jónasson, forstjóri FSA í pistli á vef stofnunarinnar í dag. „Við höfum komið því á framfæri við ... Lesa »

Hús vikunnar: Strandgata 19 (Brattahlíð)

Skilningur fólks á tölum er æði mismunandi. Ártöl segja sumum kannski ekki mikið en svona til að setja aldur húss vikunnar í samhengi má nefna að þegar Ísland varð fullvalda og Katla gaus síðast ... Lesa »

Í Múlagöngum. Mynd af vef Vegagerðarinnar

Múlagöng lokuð í tvær nætur

Múlagöng verða lokuð vegna vinnu verktaka í nótt aðfaranótt fimmtudags og á morgun, aðfaranótt föstudags, frá kl. 23.00 og til kl. 06.30. Það skal tekið fram að viðbragðsaðilar geta farið um göngin án ... Lesa »

Fyrsta ferð nýrrar sjúkraflugvélar í dag

Ný sjúkraflugvél Mýflugs fór í sína fyrstu ferð í dag. Vélin er af gerðinni King B3200 og ber einkennisstafina TF-MYA. Þörf var á nýrri vél eftir að vél Mýflugs eyðilagðist í flugslysi á Akureyri um ... Lesa »

Trio Cracovia aftur á Akureyri

Fimmtudaginn 3. okt 2013 kl. 20.00 verða tónleikar í Hofi með Trio Cracovia. Tríó Cracovia var stofnað árið 1996 af þrem vinum, fiðluleikaranum Krzystkof Smietana, sellóleikaranum Julian Tryczynski og ... Lesa »

Víðsjá kemur norður

Ákveðið hefur verið innan Ríkisútvarpsins að menningarþáttur Rásar 1, Víðsjá, sendi gagnrýnanda norður til Akureyrar á föstudag. Þorgerður E. Sigurðardóttir mun þá gagnrýna nýtt leikverk, Sek eftir ... Lesa »

Emil í Kattholti í Freyvangsleikhúsinu

Freyvangsleikhúsið æfir nú af kappi fjölskylduleikritið Emil í Kattholti eftir Astrid Lindgren. Um er að ræða leikgerð sem ekki hefur verið sýnd áður hér á landi eftir þá Sören Dahl og Anders ... Lesa »

Hærri nemendagjöld og gjöld vegna legu á sjúkrahúsinu

Í fjárlagafrumvarpi sem ríkisstjórnin hefur nú lagt fyrir Alþingi er framlag til Háskólans á Akureyri lækkað um 22,7 milljónir króna þegar búið er að taka tillit til launa- og verðlagshækkana. ... Lesa »

Öll mál eru kvennamál

Árið 1983, fyrir réttum 30 árum, voru boðnir fram kvennalistar til Alþingis í þremur kjördæmum. Árið áður komu fram kvennaframboð á Akureyri og í Reykjavík í kosningum til sveitarstjórna sem náðu ... Lesa »

Tríó Sunnu Gunnlaugs í Hofi

Tríó Sunnu Gunnlaugs heldur tónleika í Hofi á morgun, miðvikudaginn 2. október. Nýútkominn diskur Sunnu sem ber heitið Distilled fær nú hverja glimrandi umfjöllun á fætur annari erlendis ... Lesa »

Vetrarkort í Hlíðarfjalli gilda líka í Colorado

Veturinn 2013-2014 gilda vetrarkort á skíðasvæðið í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar einnig í þrjá daga á skíðasvæðið í Winter Park í Colorado sem er í eigu Denverborgar. Handhafar vetrarkorta í Winter ... Lesa »

Jarðskjálftahrina í Eyjafirði

Tveir jarðskjálftar urðu í morgun sem áttu upptök sín fyrir mynni Eyjafjarðar. Sá fyrri að stærð 3.2 varð kl. 06:14 en sá síðari um 3 að stærð varð kl. 07:41. Skjálftarnir fundust vel á ... Lesa »

eyrarrosin

Opnað fyrir umsóknir um Eyrarrósina

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um Eyrarrósina sem er viðurkenning til framúrskarandi menningarverkefna á starfssvæði Byggðastofnunar. Þetta er í tíunda sinn sem Eyrarrósin verður veitt en ... Lesa »

Störf tapast á Akureyri – skuldaraskrifstofa lokar

Ákveðið hefur verið að loka útibúi umboðsmanns skuldara á Akureyri frá og með áramótum. Er lokunin liður í hagræðingu og endurskipulagningu embættisins, segir í tilkynningu sem barst í dag. Útibú ... Lesa »

Rektor Háskólans á Akureyri, Stefán B. Sigurðsson

Ráðningu sviðsforseta við HA enn frestað

Enn hefur ákvörðun verið frestað um ráðningu í stöðu sviðsforseta við hug- og félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri. Þetta var samkvæmt heimildum blaðsins tilkynnt á fundi háskólaráðs í dag. Málið ... Lesa »

Geir Kristinn Aðalsteinsson er formaður Eyþings

Eyþing brýnir stjórnvöld

Eyþing brýnir stjórnvöld til að vinna hugsanlegar breytingar á heilbrigðisþjónustu á Eyþingssvæðinu í nánu samstarfi við íbúa, stofnanir og sveitastjórnir á svæðinu. Þetta er meðal þess sem kemur fram ... Lesa »

Vitundarvakning um ofbeldi gegn börnum

Á morgun hefst röð fræðsluþinga um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi gegn börnum sem haldin verða víða um land. Á meðal þeirra málefna sem fjallað er um er einkenni þolenda kynferðisbrota, ... Lesa »

Stefna færir Styrktarfélagi krabbameinssjúkra vefsíðu að gjöf

Veffyrirtækið Stefna á Akureyri hefur gefið Styrktarfélagi krabbameinssjúkra barna (SKB) nýja vefsíðu í vefumsjónarkerfinu Moya. Nýr vefur er hugsaður til miðlunar á upplýsingum um samtökin, ... Lesa »

Skoða meira