Það eru mér ánægjuleg tíðindi að Akureyrarkaupstaður og Fallorka, dótturfélag Norðurorku, hafi komist að samkomulagi um að byggja 3,3 MW virkjun í Glerá.
Ég hef lengi verið eindreginn talsmaður virkjunar í Glerá og hef allt frá árinu 2008 flutt um það margar tillögur í bæjarráði. Mínar fyrstu hugmyndir gengu út á að skoða möguleika á allt að 7,5 MW virkjun og þó þar sé um ágiskun leikmanns að ræða þá er ég enn þeirrar trúar að það sé kleift.
Mér er þó hins vegar fullljóst að það þarf að taka tillit til ólíkra sjónarmiða í þessum efnum og ég vil hér nota tækifærið og þakka Fallorku fyrir vel útfærða tillögu að virkjun sem ég tel að hafi náð því markmiði.
Ég tel líka að þessi framkvæmd samræmist vel samþykkt bæjarstjórnar um fólkvang á Glerárdal og nái þar að samþætta gott aðgengi allra íbúa að dalnum og um leið arðbæra nýtingu grænnar orku.
Ólafur Jónsson
Höfundur er bæjarfulltrúi D-lista.





