Vitundarvakning um ofbeldi gegn börnum

Vitundarvakning um ofbeldi gegn börnum

Á morgun hefst röð fræðsluþinga um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi gegn börnum sem haldin verða víða um land. Á meðal þeirra málefna sem fjallað er um er einkenni þolenda kynferðisbrota, skaðleg kynhegðun og klám, rannsókn kynferðisbrota og annarra brota gegn börnum, réttindafræðsla sem forvörn og hvernig fræðsluefni um kynlíf er fylgt eftir.

Þingin eru hugsuð fyrir stjórnendur, kennara og annað starfsfólk grunn- og framhaldsskóla en einnig eru forvarnarfulltrúar, náms- og starfsráðgjafar, þeir sem starfa við íþrótta-og æskulýðsmál, barnavernd, heilsugæslu og félagsþjónustu að ógleymdum sveitarstjórnum og löggæslu hvattir til að mæta.

Það er samstarfsverkefni þriggja ráðuneyta sem nefnist Vitundavakning sem stendur fyrir fræðsluþingunum en með verkefninu er lögð áhersla á að fræða þá sem vinna með börnum um eðli og afleiðingar kynferðislegs, andlegs og líkamlegs ofbeldis, svo allir séu í stakk búnir til að bregðast við, ef börn sýna þess merki að hafa orðið fyrir ofbeldi.

Hlutverk Vitundarvakningar er að kortleggja, samhæfa og stuðla að umfangsmiklu forvarnarstarfi í málaflokknum í samstarfi við viðkomandi aðila, huga að rannsóknum varðandi ofbeldi gegn börnum og stuðla að aukinni samfélagsvitund um málaflokkinn. Fræðsla og forvarnir beinast fyrst og fremst að börnum, fólki sem vinnur með börnum, réttarvörslukerfinu sem og almenningi.

Fyrsta fræðsluþingið fer fram á morgun 1. október í Fjölbrautaskóla Norðurlands á Sauðárkróki en miðvikudaginn 2. október fer fram þing í Verkmenntaskólanum á Akureyri þar sem Illugi Gunnarsson, menntamálaráðherra, mun flytja ávarp. Staðsetningar og tíma þinganna yfir allt landið má sjá hér. Skráning á þingin fer fram með tölvupósti á gestamottakan@gestamottakan.is

Dagskrá fræðsluþinganna er eftirfarandi:
12.30 Hádegissnarl.

13:00 Ávarp ráðherra.

13:10 Vitundarvakning. Kynning á verkefninu, vefur, fræðsluefni.

13:15 Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, handritshöfundur og verkefnastjóri Fáðu já. „Fáðu já og annað
fræðsluefni – og hvað svo?“.

13:30 Hjördís Þórðardóttir/ Bergsteinn Jónsson, verkefnastjóri. „Réttindafræðsla sem forvörn.“

13:45 Kaffi & te.

14:00 Ólöf Ásta Farestveit/Margrét Kristín Magnúsdóttir/Þóra Sigfríður Einarsdóttir/Þorbjörg Sveinsdóttir frá Barnahúsi. „Einkenni þolenda kynferðisbrots.“

14.15 Anna Kristín Newton/María Jónsdóttir/Ólafur Bragason/Sólveig Fríða /Þórarinn Viðar Hjaltason:
„Skaðleg kynhegðun barna og klám.“

14:30 Stefán Eiríksson, lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu flytur erindið „Rannsókn kynferðisbrota og
annarra brota gegn börnum.“

14:45 Kaffi og veitingar.

15:20 Hópastarf sem fyrirlesarar stýra.

16:20 Stutt samantekt.

16:40 Bæjarstjóri/forseti bæjarstjórnar slítur þinginu.

Bæjarstjóri harmar lokun útibús Umboðsmanns skuldara

Bæjarstjórinn á Akureyri harmar ákvörðun um að útibúi Umboðsmanns skuldara á Akureyri verði lokað. Þetta kemur fram í tilkynningu sem hann sendi frá sér rétt í þessu. „Óhætt er að fullyrða að mikil ... Lesa »

Opið bréf til Landsnets

Margt bendir til þess að fyrirhuguð 220 kV háspennulína frá Blönduvirkjun, um þveran Eyjafjörð og til Fljótsdals hafi það hlutverk að fullnægja flutningsþörf frá Blönduvirkjun. Sú virkjun virðist í ... Lesa »

Það á að troða inn á okkur háspennulínu

„Ég held að það eigi að troða inn á okkur háspennulínu bak við tjöldin, við fáum ekki að skipuleggja í okkar landi og höfum aldrei komist þangað sem við viljum,“ segir Sigurður Sigurðsson ... Lesa »

Bakki við Húsavík.

Fjárfestingasamningur um kísilver á Bakka undirritaður

  Ragnheiður Elín Árnadóttir iðnaðar- og viðskiptaráðherra undirritaði í gær fyrir hönd íslenska ríkisins fjárfestingarsamning við þýska félagið PCC vegna byggingar og reksturs kísilvers á ... Lesa »

Jarðskjálfti upp á 3,8 varð í mynni Eyjafjarðar

Jarðskjálfti að stærð 3.8 varð kl. 19:40 í kvöld fyrir mynni Eyjafjarðar. Upptök skjálftans urðu á sömu sprungu og hefur verið virk síðan 25. september, en á henni hafa mælst hundruðir skjálftar sl. ... Lesa »

Ríkisstörf sópast burt

Þrátt fyrir að störfum á vegum ríkisins hafi fjölgað á landsvísu eftir hrun hefur ríkisstörfum stórfækkað á Norðurlandi. Þetta sýnir áður óbirt skýrsla sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands hefur unnið ... Lesa »

Björn Þorláksson

Þess vegna þarf Rúv að standa sig

Það eru góðar fréttir fyrir jafnræðisviðleitni í byggðamálum að Ríkisútvarpið hafi ákveðið að sinna skyldum sínum með því að senda Þorgerði E. Sigurðardóttur leiklistargagnrýnanda menningarþáttarins ... Lesa »

Langþráður draumur orðinn að veruleika

Miklar umbætur eru nú á döfinni í þjónustu við fólk með geðraskanir á Akureyri og nágrenni því Geðverndarfélag Akureyrar hefur tekið á leigu húsnæði á fjórðu hæð í Hafnarstræti 95 þar sem ... Lesa »

Jóhanna Sigurðardóttir 100 ára

Jóhanna Sigurðardóttir íbúi á Öldrunarheimili Akureyrarbæjar í Grenihlíð átti 100 ára afmæli í gær, 1. október. Í tilefni dagsins var boðið til veislu á heimilinu. Í veisluna mætti meðal annars ... Lesa »

Forstjóri FSA ósáttur við fjárlagafrumvarp

„Þær upphæðir sem okkur eru ætlaðar til reksturs sjúkrahússins eru okkur vonbrigði,“ segir Bjarni Jónasson, forstjóri FSA í pistli á vef stofnunarinnar í dag. „Við höfum komið því á framfæri við ... Lesa »

Hús vikunnar: Strandgata 19 (Brattahlíð)

Skilningur fólks á tölum er æði mismunandi. Ártöl segja sumum kannski ekki mikið en svona til að setja aldur húss vikunnar í samhengi má nefna að þegar Ísland varð fullvalda og Katla gaus síðast ... Lesa »

Í Múlagöngum. Mynd af vef Vegagerðarinnar

Múlagöng lokuð í tvær nætur

Múlagöng verða lokuð vegna vinnu verktaka í nótt aðfaranótt fimmtudags og á morgun, aðfaranótt föstudags, frá kl. 23.00 og til kl. 06.30. Það skal tekið fram að viðbragðsaðilar geta farið um göngin án ... Lesa »

Fyrsta ferð nýrrar sjúkraflugvélar í dag

Ný sjúkraflugvél Mýflugs fór í sína fyrstu ferð í dag. Vélin er af gerðinni King B3200 og ber einkennisstafina TF-MYA. Þörf var á nýrri vél eftir að vél Mýflugs eyðilagðist í flugslysi á Akureyri um ... Lesa »

Trio Cracovia aftur á Akureyri

Fimmtudaginn 3. okt 2013 kl. 20.00 verða tónleikar í Hofi með Trio Cracovia. Tríó Cracovia var stofnað árið 1996 af þrem vinum, fiðluleikaranum Krzystkof Smietana, sellóleikaranum Julian Tryczynski og ... Lesa »

Víðsjá kemur norður

Ákveðið hefur verið innan Ríkisútvarpsins að menningarþáttur Rásar 1, Víðsjá, sendi gagnrýnanda norður til Akureyrar á föstudag. Þorgerður E. Sigurðardóttir mun þá gagnrýna nýtt leikverk, Sek eftir ... Lesa »

Emil í Kattholti í Freyvangsleikhúsinu

Freyvangsleikhúsið æfir nú af kappi fjölskylduleikritið Emil í Kattholti eftir Astrid Lindgren. Um er að ræða leikgerð sem ekki hefur verið sýnd áður hér á landi eftir þá Sören Dahl og Anders ... Lesa »

Hærri nemendagjöld og gjöld vegna legu á sjúkrahúsinu

Í fjárlagafrumvarpi sem ríkisstjórnin hefur nú lagt fyrir Alþingi er framlag til Háskólans á Akureyri lækkað um 22,7 milljónir króna þegar búið er að taka tillit til launa- og verðlagshækkana. ... Lesa »

Öll mál eru kvennamál

Árið 1983, fyrir réttum 30 árum, voru boðnir fram kvennalistar til Alþingis í þremur kjördæmum. Árið áður komu fram kvennaframboð á Akureyri og í Reykjavík í kosningum til sveitarstjórna sem náðu ... Lesa »

Tríó Sunnu Gunnlaugs í Hofi

Tríó Sunnu Gunnlaugs heldur tónleika í Hofi á morgun, miðvikudaginn 2. október. Nýútkominn diskur Sunnu sem ber heitið Distilled fær nú hverja glimrandi umfjöllun á fætur annari erlendis ... Lesa »

Vetrarkort í Hlíðarfjalli gilda líka í Colorado

Veturinn 2013-2014 gilda vetrarkort á skíðasvæðið í Hlíðarfjalli ofan Akureyrar einnig í þrjá daga á skíðasvæðið í Winter Park í Colorado sem er í eigu Denverborgar. Handhafar vetrarkorta í Winter ... Lesa »

Jarðskjálftahrina í Eyjafirði

Tveir jarðskjálftar urðu í morgun sem áttu upptök sín fyrir mynni Eyjafjarðar. Sá fyrri að stærð 3.2 varð kl. 06:14 en sá síðari um 3 að stærð varð kl. 07:41. Skjálftarnir fundust vel á ... Lesa »

eyrarrosin

Opnað fyrir umsóknir um Eyrarrósina

Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um Eyrarrósina sem er viðurkenning til framúrskarandi menningarverkefna á starfssvæði Byggðastofnunar. Þetta er í tíunda sinn sem Eyrarrósin verður veitt en ... Lesa »

Störf tapast á Akureyri – skuldaraskrifstofa lokar

Ákveðið hefur verið að loka útibúi umboðsmanns skuldara á Akureyri frá og með áramótum. Er lokunin liður í hagræðingu og endurskipulagningu embættisins, segir í tilkynningu sem barst í dag. Útibú ... Lesa »

Rektor Háskólans á Akureyri, Stefán B. Sigurðsson

Ráðningu sviðsforseta við HA enn frestað

Enn hefur ákvörðun verið frestað um ráðningu í stöðu sviðsforseta við hug- og félagsvísindadeild Háskólans á Akureyri. Þetta var samkvæmt heimildum blaðsins tilkynnt á fundi háskólaráðs í dag. Málið ... Lesa »

Geir Kristinn Aðalsteinsson er formaður Eyþings

Eyþing brýnir stjórnvöld

Eyþing brýnir stjórnvöld til að vinna hugsanlegar breytingar á heilbrigðisþjónustu á Eyþingssvæðinu í nánu samstarfi við íbúa, stofnanir og sveitastjórnir á svæðinu. Þetta er meðal þess sem kemur fram ... Lesa »

Skoða meira