Ákveðið hefur verið að loka útibúi umboðsmanns skuldara á Akureyri frá og með áramótum. Er lokunin liður í hagræðingu og endurskipulagningu embættisins, segir í tilkynningu sem barst í dag.
Útibú umboðsmanns skuldara á Akureyri var opnað í febrúar 2012. Á síðustu 20 mánuðum hafa verið um þúsund heimsóknir til útibúsins og 320 umsóknir vegna greiðsluerfiðleika hafa borist frá þjónustusvæði útibúsins á Norðurlandi eða að meðaltali um 16 umsóknir á mánuði. Á sama tíma hafa tæplega 3.000 umsóknir borist af landinu öllu. Umsóknir frá þjónustusvæði útibúsins hafa ýmist verið afgreiddar af starfsfólki á Akureyri eða í Reykjavík.
Íbúar landsbyggðarinnar munu áfram geta sótt um aðstoð vegna greiðsluerfiðleika á heimasíðu embættisins.
Útibú umboðsmanns skuldara í Reykjanesbæ verður áfram starfrækt.
-BÞ





