Freyvangsleikhúsið æfir nú af kappi fjölskylduleikritið Emil í Kattholti eftir Astrid Lindgren. Um er að ræða leikgerð sem ekki hefur verið sýnd áður hér á landi eftir þá Sören Dahl og Anders Baggesen sem Guðjón Ólafsson þýddi en Hallmundur Kristinsson þýddi söngtextana.
Í ár eru 50 ár síðan fyrsta bókin kom út um Emil og strákapörin hans og í tilefni af því setur Freyvangsleikhúsið upp þessa sýningu. „Þetta er mannmörg sýning með mörgum og skemmtilegum söngvum,“ segir Saga Jónsdóttir leikstjóri.
Í hlutverki Emils er Sigurður Bogi Ólafsson 11 ára og Idu litlu systur hans leikur Steingerður Snorradóttir 8 ára. Æfingar eru nú á hverjum degi, oftast fjóra tíma í senn, sex daga vikunnar og segir Sigurður Bogi verkefnið vera strembið en skemmtilegt. „Ég er stundum svolítið þreyttur á kvöldin en ég er samt ekkert þreyttur á þessu,“ segir Siggi Bogi, eins og hann er oftast kallaður.
Siggi Bogi stefnir á að verða tólistarmaður og leikari en hann hefur lagt stund á tónlistarnám frá þriggja ára aldri og lærir nú á fiðlu í Tónlistarskólanum á Akureyri. Hann er alls ekki óvanur því að troða upp því hann syngur gjarnan og spilar í fjölskyldusamkvæmum og víðar. „Ég hef ekki lært söng áður en ég syng í tíu lögum í leikritinu og Linda sem er tónlistarstjóri er búin að kenna mér mikið,“ segir Siggi Bogi.
Frumsýning verður þann 18. október. Leikstjóri er Saga Jónsdóttir og tónlistarstjóri Linda Guðmundsdóttir, Hallmundur Kristinsson hannar leikmyndina. Sýningin sjálf er mannmörg því 16 leikarar taka þátt í henni og að auki fimm manna hljómsveit.
Meðfylgjandi myndir tók Gunnlaug E. Friðriksdóttir
- Emil og Ída. Mynd: Gunnlaug E. Friðriksdóttir
-SBS





