Hálönd vestan Hlíðarfjalls. Miklir hagsmunir eru í húfi að sögn verktaka og því þarf að koma háspennulínu í jörð.
„Ég held að það eigi að troða inn á okkur háspennulínu bak við tjöldin, við fáum ekki að skipuleggja í okkar landi og höfum aldrei komist þangað sem við viljum,“ segir Sigurður Sigurðsson framkvæmdastjóri hjá SS Byggi.
SS Byggir stendur að umfangsmikilli ferðaþjónustu og útivistarverkefni sem kallast Hálönd. Skammt neðan skíðaparadísarinnar Hlíðarfjalls hafa sprottið upp hús á vegum verktakans og er stefnt að hundað húsum að lágmarki. Þegar hafa verið seld 10 hús og er eftirspurn meiri en framboð að sögn Sigurðar. Meiningin er að hafa lyftu frá svæðinu upp að skíðasvæðinu en háspennulína í lofti, Blöndulína þrjú, eins og hún er oft kölluð, gæti haft afar neikvæð áhrif á framtíðarmöguleika svæðisins að mati verktakans. Í dag verður opinn fundur á Akureyri með forstjóra Landsnets. Sigurður segist bíða spenntur eftir þeim fundi.
Verður að fara í jörð
„Við höfum ekkert á móti háspennulínu en hún verður að fara í jörð. Enginn vill fá þetta,“ segir Sigurður.
Hann segist líta svo á sem um mjög mikilvægt hagsmunamál fyrir bæinn sé að ræða. „Það var talað um að við værum svolítið mikið bjartsýnir að byggja 10 hús á ári næstu 10 árin en undirtektirnar segja okkur að eftirspurnin sé vanáætluð. Ég held við séum óbeint að flytja mjög marga inn í bæinn með þessu framtaki, enda rúmast átta manns í hverju húsi.“
Framkvæmdastjóri SS Byggis segist óttast að skipulagsdeild Akureyrarbæjar standi ekki í lappirnar í málinu. E.t.v. sé þrýst á deildina úr ýmsum áttum. Blaðið reyndi að ná tali af Pétri Bolla hjá skipulagsdeild Akureyrarbæjar en hann er í fríi. Heimildarmaður blaðsins innan bæjarins segir að deiliskipulag Hálandasvæðisins sé unnið í áföngum, boltinn sé hjá SS-Byggi hvað varði áfanga tvö. Enginn þrýstingur sé á skipulagsyfirvöld „umfram það sem verið hefur“, eins og það var orðað, hvorki hafi verið tekin ákvörðun um legu né gerð lagna enn.
-BÞ

