Í fjárlagafrumvarpi sem ríkisstjórnin hefur nú lagt fyrir Alþingi er framlag til Háskólans á Akureyri lækkað um 22,7 milljónir króna þegar búið er að taka tillit til launa- og verðlagshækkana. Niðurskurðurinn nemur þó hærri upphæð því gert er ráð fyrir að skrásetningargjald sem lagt er á nemendur hækki úr 60.000 í 75.000 kr.
Hvað Sjúkrahúsið á Akureyri varðar þá er gert ráð fyrir að sértekjur sjúkrahússins hækki um 22,1 milljón króna vegna áforma um innheimtu gjalds á hvern legudag á sjúkrahúsinu. Gert er ráð fyrir að rekstrarkostnaður hækki um 50,5 milljónir króna og munar þar mest um framlag tengdu jafnlaunaátaki stjórnvalda eða 122,6 milljónir sem eiga að mæta útgjaldahækkun vegna stofnanasamninga við ákveðnar starfsstéttir. Á móti verður tímabundið framlag til tækjakaupa, 50 milljónir, fellt niður.
Myndlistarskólinn á Akureyri heldur sínu framlagi, 20,2 milljónum en framlag til Vetraríþróttamiðstöðvar Íslands á Akureyri lækkar um 15 milljónir, úr 17,7 milljónum í 2,7.
Ekki virðist gert ráð fyrir fjárheimildum til leiðréttinga vegna skuldavanda heimilanna í fjárlagafrumvarpinu.
-SBS





