Tveir jarðskjálftar urðu í morgun sem áttu upptök sín fyrir mynni Eyjafjarðar. Sá fyrri að stærð 3.2 varð kl. 06:14 en sá síðari um 3 að stærð varð kl. 07:41. Skjálftarnir fundust vel á Ólafsfirði.
Jarðskjálftahrina hófst 25. september syðst í Eyjafjarðarálnum og raða skjálftarnir sér á 3 km. langa sprungu með stefnu suðaustur og lenda á 9-10.5 km dýpi. Uppúr kl 06 í morgun jók heldur í en hefur heldur dregið úr eftir kl. 11. Fleiri hundruð skjálftar hafa mælst á svæðinu en fáir yfir 3 að stærð. Jarðskjálftavakt veðurstofunnar fylgist náið með virkninni.





