Eyþing brýnir stjórnvöld til að vinna hugsanlegar breytingar á heilbrigðisþjónustu á Eyþingssvæðinu í nánu samstarfi við íbúa, stofnanir og sveitastjórnir á svæðinu. Þetta er meðal þess sem kemur fram í ályktunum sem fulltrúar Eyþings samþykktu á aðalfundi sínum sem haldinn var á Grenivík um helgina. Einnig er þar skorað á stjórnvöld að tryggja aðgengi að grunnþjónustu heilsugæslu og öldrunarþjónustu á svæðinu. „Í ljósi þess að einungis ein fæðingadeild er á Eyþingssvæðinu leggur fundurinn til að tryggð verði aðstaða og stuðningur fyrir verðandi foreldra í námunda við Sjúkrahúsið á Akureyri“. Ítrekað var mikilvægi þess að standa vörð um og efla uppbyggingu Sjúkrahússins á Akureyri.
Fundurinn leggur áherslu á að fyrirhuguð stytting framhaldsskólanáms verði unnin í nánu samstarfi við sveitarfélögin. „Það fjárhagslega svigrúm sem skapast verði nýtt til að bæta kjör og ná betri árangri í skólastarfi. Í grunnskólum verði jafnframt leitað leiða til að efla virðingu fyrir list- og verkgreinum. Bent er á mikilvægi þeirra sem lið í að draga úr brottfalli ungs fólks úr framhaldsskólum,“ segir í ályktun um skólamál.
Lýst er yfir ánægju með sóknaráætlun landshlutans og stjórnvöld hvött til að tryggja fjármuni í verkefnið þannig að hægt sé að þróa þetta verklag enn frekar.
-SBS





