KA/Þór sigraði lið Aftureldingar í Olís-deild kvenna í dag. Leikið var í KA-heimilinu og var gríðarlega vel mætt á leikinn. Ríflega 300 manns sáu stúlkurnar gjörsamlega valta yfir Aftureldingu, 31-23.
KA/Þór hóf leikinn af miklum krafti og náði strax góðu forskot. Þær gáfu þó aðeins eftir í lok fyrri hálfleiks en leiddu þó með tveimur mörkum í hálfleik, 14-12. Martha Hermannsdóttir fór mikinn í sóknarleik Norðanstúlkna og spilaði stöllur sínar uppi, hvað eftir annað.
Í síðari hálfleik var aldrei spurning um hvort liðið fær með sigur að hólmi, en KA/Þór náði strax 9 marka forskoti og eftir það var ekki aftur snúið. Fjölmargir áhorfendur leiksins sáu stúlkurnar leika við hvurn sinn fingur og ber sérstaklega að nefna frammistöðu Sunnu Pétursdóttur í marki KA/Þór en hún varði fjölmörg skot, þrátt fyrir ungan aldur.
Markahæst í liði KA/Þór var Martha Hermannsdóttir með 10 mörk en Hekla Daðadóttir gerði 10 fyrir Aftureldingu.
-SMS





