Akureyringar lágu í valnum í dag þegar þeir mættu ríkjandi bikarmeisturum ÍR í Olís-deild karla í handbolta. Leiknum lauk með fjögurra marka sigri ÍR, 27-23 en þeir leiddu með einu marki í hálfleik.
Akureyri, sem byrjaði mótið á sigri gegn Fram í fyrstu umferð, átti í erfiðleikum með vörn ÍR-inga, sérstaklega í seinni hálfleik og Kristófer markmann þeirra. Valþór Atli Guðrúnarson átti þó enn einn stórleikinn en hann skoraði sex mörk fyrir Akureyringa, eins og Kristján Orri Jóhannsson. Aðeins sex leikmenn komust á blað hjá Akureyri í dag.
ÍR var að vinna sinn fyrsta leik eftir að hafa tapað gegn ÍBV í fyrstu umferð og hafa því bæði lið tvö stig eftir tvær umferðir í deildinni, líkt og svo mörg önnur lið.
Mörk ÍR: Björgvin Hólmgeirsson 9, Sturla Ásgeirsson 6, Arnar Birkir Hálfdánsson 5, Jón Heiðar Gunnarsson 4, Sigurjón Björnsson 2, Guðni Kristinsson 1.
Mörk Akureyrar: Valþór Atli Guðrúnarson 6, Kristján Orri Jóhannsson 6, Bjarni Fritzson 4, Þrándur Gíslason Roth 4, Sigþór Árni Heimisson 2, Gunnar Malmquist 1.
-SMS





