Tvær sýningar opna á morgun, laugardaginn 2. mars kl. 15 hjá Sjónlistamiðstöðinni. Annars vegar opnar í Ketilhúsi sýningin Móttökustöð fyrir mannsandann en það er sýning á verkum alþýðulistamannsins og völundarins Guðmundar Viborg Jónatanssonar (1853-1936).
Um sýninguna segir á vef Sjónlistamiðstöðvarinnar: „Myndir hans eru markverð viðbót við það stóra safn myndverka eftir sjálflærða listamenn sem smám saman hefur komið fram á sjónarsviðið á Íslandi á undanförnum áratugum. Viðfangsefnið er óútreiknanlegur margbreytileiki lífsins, tjáður af hreinskilni og leikgleði“.
Hin sýningin er í Deiglunni og nefnist Víxlverkun. Þar gefur að líta verk listakvennanna D. Írisar Sigmundsdóttur og Herthu Maríu Richardt Úlfarsdóttur. „Blíðlyndi, leikgleði, húmor, skelfing, ofsi, togstreita, húmor og ádeila eru nokkur orð sem lýsa myndverkum þeirra Írisar og Herthu. Í teikningum sínum leika þær sér að þeirri mynd sem samfélagið dregur upp af kvenmönnum og kvenmannslíkamanum; þeim kröfum, þankagangi, sársauka og fegurð sem er ítrekað otað að einstaklingum samfélagsins. Þetta eru þeir sameiginlegu þræðir sem binda annars ólík myndverk þessara tveggja myndlistamanna,“ segir um sýninguna á vef Sjónlistamiðstöðvarinnar.








