Á kirkjuþingi, sem slitið var í dag, var samþykkt að Möðruvallaprestakalli verði aftur skipt upp í tvö prestaköll. Það varð til við sameiningu Möðruvalla- og Hríseyjarprestakalls í júlí í fyrra, en þá voru sóknarnefndir prestakallanna tveggja einhuga í andstöðu sinni við sameiningu sóknanna.
Að sögn Árna Svans Daníelssonar, upplýsingafulltrúa Kirkjuþings, verður sami prestur áfram í Hríseyjarprestakalli en að enn liggi ekki fyrir hvenær nýr prestur verði ráðinn í Möðruvallasókn.
Frá þessu var sagt á ruv.is








