Einn lést þegar bíll ók út af veginum við Norðurárdal í Skagafirði á þriðja tímanum í dag. Þrír til viðbótar voru í bílnum en ekki er vitað um meiðsl þeirra, einn af þeim er þó alvarlega slasaður. Hinir tveir voru með meðvitund þegar hjálp barst.
Fréttastofa Rúv greindi frá því að ökumaður virtist hafa misst stjórn á bifreiðinni með þeim afleiðingum að bíllinn fór út af veginum og valt. Sá sem lést var úrskurðaður látinn á vettvangi.
Þremenningarnar voru fluttir með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Reykjavíkur þar sem þeim var komið undir læknishendur á Landspítalanum. Rannsóknardeild umferðarslysa er nú á vettvangi í Norðurárdal en búið er að opna fyrir umferð um veginn.








