Hvað er gagnrýnin hugsun? Af hverju er hún mikilvæg? Þetta eru spurningar sem Harvey Siegel prófessor við Háskólann í Miami veltir upp í fyrirlestri sem haldinn verður við Háskólann á Akureyri í dag, mánudaginn 4. mars, kl. 12:00
Harvey Siegel er í hópi þekktustu kenningasmiða í veröldinni um gagnrýna hugsun, hann hefur skrifað tvær bækur um efnið, sem eru viðurkenndar grunnbækur, og fjöldamargar fræðilegar greinar. Hann er frjór og frumlegur kenningasmiður.
Í fyrirlestri sínum mun Siegel rökræða mikilvægustu heimspekilegu kenningar um gagnrýna hugsun, rannsaka þá þekkingarfræði sem hún hvílir á, fjalla um stöðu hennar sem markmið menntunar og ýmsar spurningar sem hún vekur og gagnrýni sem hún hefur sætt.





























