Fyrsta degi vetrar er fagnað með ljósi í mörgum myndum á Minjasafninu á Akureyri laugardaginn 26. október kl 14-16. Stoðvinir Minjasafnsins standa fyrir forvitnilegri og fræðandi dagskrá fyrir alla fjölskylduna um ljós og lýsingu frá kolu til rafmangslýsingar.
Börn og fullorðnir geta reynt með sér í gerð skuggamynda, skoðað norðurljós innandyra með vasaljósi á sýningunni Norðurljós – Næturbirta norðursins, hlustað á valda kafla úr gömlum barnabókum, og séð kolu, olíu- og lýsislampa svo eitthvað sé nefnt. Erindi Stoðvinanna um ljós, lýsingu, ljósfæri og ljósmeti hefjast kl 14:15 og verða endurtekin 15:15.
Kleinur, safi og kaffi í boði Stoðvina Minjasafnsins.



















