Næstkomandi laugardag, þann 26. október, stendur Alþjóðastofa fyrir Alþjóðlegu konukaffi í húsakynnum Amtsbókasafnsins á Akureyri frá kl. 12-14. Sérstakur gestur að þessu sinni verður fjölmiðlakonan og rithöfundurinn Snæfríður Ingadóttir.
Starfsmaður bókasafnsins mun taka á móti gestum í anddyri safnsins klukkan 12 og segir stuttlega frá starfsemi þess. Snæfríður Ingadóttir kemur svo í heimsókn og kynnir nýútgefna bók sína „The Icelandic Woman“ sem hún vann ásamt ljósmyndaranum Þorvaldi Erni Kristmundssyni.
Heitt verður á könnunni í boði Alþjóðastofu og gestir eru hvattir til að koma með eitthvað smáræði með sér en auk þess mun kaffiterían, Amts-Kaffi-Ilmur, hafa opið og selja veitingar. Allar konur eru velkomnar á Alþjóðlegt konukaffi, ekki síst íslenskar.
Á vef Alþjóðastofu má finna svipaða frétt á þremur tungumálum
-tilkynning



















