Opið bréf til Lilju Bjarkar

Hanna Þórsteinsdóttir

Mig langar til að byrja á því að svara þeirri vangaveltu þinni um hvort það geti verið að þú sért karlremba. Ég held nú ekki en aftur á móti gæti ég trúað því og finnst reyndar ansi augljóst að þú sért að misskilja. Mig langar að reyna að útskýra þetta fyrir þér um leið og ég segi þér að ég samgleðst þér innilega fyrir að upplifa samfélagið okkar sem algjört jafnréttissamfélag fyrir alla hópa. Það hlýtur að vera gleðileg upplifun. Þó raunveruleikinn sé síðan allt annar.

Ég ætla ekki að svara þeirri fullyrðingu þinni um að svartir og hvítir hafi jafna möguleika því þá baráttu þekki ég síður en ég vona að einhver taki að sér að fræða okkur hin sem minna vitum. Um mögulegt jafnrétti og ójafnrétti veit ég hins vegar margt.

Ég ætla að því byrja á að rekja ofan í þig þá staðreyndar villu að möguleikar karla og kvenna séu jafnir. Það er hægt að gera á ótal vegu.

Það er til bók sem heitir “Það er staður í helvíti fyrir konur sem hjálpa ekki hver annarri” og er eftir Lizu Marklund og Lottu Snickare. Þetta er ákaflega merkileg bók þar sem þær stöllur rekja ólíka stöðu kynjanna frá fæðingu og allt til vinnumarkaðar með sérstaka áherslu á konur í viðskiptalífinu en þær reka sig ítrekað á glervegginn. Ég mæli með því að þú lesir bókina því hún er ákaflega skemmtileg og fræðandi.

Í bókinni kemur fram skýr og greinilegur munur á því hvernig við komum fram við stúlkubörn annars vegar og drengjabörn hins vegar, allt frá fæðingu. Það sem stendur upp úr lestri bókarinnar fyrir mína parta er tvennt; Annars vegar var það rannsókn sem gerð var á gráti ungabarns. Hópur fólks var látinn hlusta á barnsgrát og helmingur hópsins hélt að barnið væri stúlka en hinn helmingurinn hélt að barnið væri drengur. Þau áttu síðan að útskýra ástæður grátsins. Hópurinn sem hélt að barnið væri stúlka sagði að hún hlyti að vera leið. Hópurinn sem hélt að barnið væri drengur sagði hann reiðann. Í mínum huga algjörlega skýr og mjög greinilegur munur á viðhorfum sem ákvarðast aðeins út frá kyni barnsins, engu öðru. Og þá er spurning hvort slík viðhorf hljóti ekki að yfirfærast inn í heim fullorðinna. Konur eru mýkri og karlmenn harðari. Konur jafnvel þá verr í stakk búnar til að takast á við hörð verkefni eins og stjórnmál til dæmis og þá karlmenn ekki jafn góðir í mýkri hliðum lífsins eins og barnauppeldi til dæmis. Ég neita að trúa því að það sé raunveruleiki sem aðeins megi útskýra með ólíkri getu heldur verði útskýrður með úreltum viðhorfum okkar.

Þá var það rannsókn, sem ætti að styðja kenninguna mína um yfirfærslu í heim fullorðinna, þar sem hópur fólks las blaðagrein. Helmingurinn hélt að greinin væri eftir konu og hinn hópurinn hélt að greinin væri eftir karlmann. Hópurinn sem las greinina eftir konuna fannst hún illa skrifuð, leiðinleg og þar fram eftir götunum á meðan hópurinn sem las sömu grein, nema hélt hún væri eftir karlmann fannst hún hnyttin, vel skrifuð og svo framvegis. Aftur áfkaflega skýr munur sem ákvarðast aðeins út frá kyni höfundar, engu öðru.

Bara þetta tvennt hlýtur að sýna okkur að viðhorf okkar til kynjanna eru ólík.

Tökum fleiri dæmi um ójafna stöðu kynjanna úr okkar raunveruleika:

-Óútskýrður launamunur kynjanna er talsverður hér á landi eða um 18% . Talsverður munur myndi ég segja í jafnréttisríki eins og þú sérð það. Ég bendi á að hér er ég að tala um óútskýrðan launamun. Munurinn er talsvert meiri þegar ekki er búið að setja hinar ýmsustu breytur inn í jöfnuna. (http://www.jafnretti.is/jafnretti/?D10cID=Page3&ID=44)

-Kynbundið ofbeldi. Í könnun frá árinu 2010 kemur í ljós að 42% kvenna á Íslandi hafa verið beittar ofbeldi einhvern tíma frá 16 ára aldri. Talsvert há tala í fullkomu jafnrétti finnst þér ekki? (http://eldri.reykjavik.is/en/desktopdefault.aspx/tabid-4561/7901_view-5009/)

-Konur sækja sér frekar háskólamenntun en skila sér síður í stjórnunarstöður á vinnumarkaðnum. Útskýringin gæti auðvitað verið sú að konur trani sér ekki fram sbr. þína útskýringu á því af hverju konan fékk ekki afgreiðslu á dekkjaverkstæðinu. Ég reyndar trúi ekki slíkum útskýringum. Það er mun dýpra á því en það.(http://www.hagstofa.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=881)

-Það er ekki jafnrétti inni á heimilum landsins. Konur sinna heimilisverkum frekar en karlmenn og vinnudagurinn þeirra þegar heimilisverkum er bætt ofan á vinnutímann utan heimilis er lengri svo um munar. Þetta sýna íslenskar rannsóknir. (Þóra Kristín Þórsdóttir hefur til dæmis skoðað þetta http://www.youtube.com/watch?v=0glnsdY0uwY)

Svona gæti ég haldið endlaust áfram. Við gætum talað um útlitsdýrkun, konur í poppheiminum, konur í kvikmyndum, konur í hljómsveitum, konur í stjórnmálum og þá til dæmis konur í ríkisstjórn þessa lands og konur í ráðherrastólum, prófkjör sjálfstæðisflokksins í borginni, stúlkur sem fá minni athygli en drengir í skólanum sínum, leikfangaval fullorðinna handa börnum, fótboltakonur sem fá síður viðurkenningar (til dæmis í formi peninga) en fótboltakarlmenn, fleiri dæmi má finna í íþróttaheiminum og jafnvel í barnastarfi íþróttafélaganna. Við getum talað um klám, vændi og strippstaði. Listinn er ótæmandi.

Sumt af þessu myndir þú jafnvel skrifa á óframfærni kvenna. Ég hef bara meiri trú á konum en svo að ég geti samþykkt slíkar kenningar.

Ég held að fæstar konur líti á sig sem einhver sérstök fórnarlömb. Og fæstar sömuleiðis sem horfa þannig á heiminn að allir karlmenn séu alvondir. Það má samt kalla karla til ábyrgðar. Það má hvetja þá til að fara í gegnum viðhorf sín og framferði með okkur konunum og vekja máls á því að ójafnréttið er sameiginlegt vandamál og þar af leiðandi sameiginlegt verkenfi okkar að leysa.

Það er ekki jafnrétti á Íslandi. Og ég tel það skaðlegt að skrifa jafnréttisbaráttuna á fórnarlambshugsunarhátt. Konur láta ekki vaða yfir sig. Það lætur enginn vaða yfir sig.

Í mínum huga er þetta ákaflega einfalt mál. Við komum ólíkt fram við börn þessa lands eftir því hvort kynið um ræðir. Við komum ólíkt fram við fullorðna eftir kyni. Þetta er spurning um viðhorf. Viðhorf sem eru svo djúpt í sálarlífi samfélagsins að það mun taka langan tíma að fletta ofan af þeim og ég gæti best trúað því að það verði það sem erfiðast verði að leiðrétta í baráttunni fyrir fullkomnu jafnrétti. Jú, við höfum það skrambi ágætt með tilliti til jafnréttismála á Íslandi en baráttunni er ekki lokið. En hún er ekki væl, eða sjálfsvorkunn eða neitt slíkt, hún er bara barátta fyrir jafnari stöðu.

Ég er algjörlega sammála þér um að við viljum jafnrétti en ekki forréttindi og þess vegna finnst mér gott að geta glatt þig með því að við erum ennþá að vinna í því að rétta hlut stúlkna og kvenna og eigum nokkur verkefni enn óleyst. Svo það er langt í að við þurfum að hafa áhyggjur af því að konur taki við því hlutverki að verða forréttindahópur. Byrjum á þessu með jafnréttið og svo geta barnabörnin okkar og jafnvel börnin okkar (ég leyfi mér að vera bjartsýn) passað upp á að viðhalda því.

Bestu kveðjur, Hanna Þórsteinsdóttir,
ættuð úr Vallakoti í Þingeyjarsveit en nú húsmóðir í Vesturbæ Reykjavíkur.

Michael Clarke

The Icelandic Economic Miracle-Price Indexing!

Back in 1973 we bought our first flat. Significantly it was the same day that the Vestmann Isles erupted. We toddled down to the builder’s office and paid our deposit. That was all the money we had ... Lesa »

Að brjóta múr óttans

Flughræðsla er talin hrjá allt að 20% fullorðinna. Hefur verið sýnt fram á samband milli vaxandi flughræðslu og aukinnar ábyrgðarkenndar, t.d. þegar fólk eignast börn. Oddur Helgi Halldórsson leið ... Lesa »

Sigrún Stefánsdóttir ávarpar friðarblysför

Blysför í þágur friðar á Akureyri Þorláksmessu kl. 20 Gengið frá Samkomuhúsinu Hafnarstræti út á Ráðhústorg. Ávarp: dr. Sigrún Stefánsdóttir fjölmiðlafræðingur. Söngur: Söngsystur úr MA Kerti ... Lesa »

Jólatónleikar og vínylplötumarkaður á Akureyri Backpackers!

Á morgun miðvikudag verða síðustu miðvikudagstónleikar Backpackers á þessu ári, þegar Karl Henry heldur tónleika sem verða tileinkaðir jólunum. Tónleikarnir hefjast klukkan 20:30 og er frítt ... Lesa »

Hugleikur aftur á Akureyri

Listamaðurinn, uppistandarinn og þáttagerðarmaðurinn Hugleikur Dagsson mun fara með uppistandið Djókaín í Hofi fimmtudaginn 19. desember kl. 20. Þetta er í annað sinn sem Hugleikur kemur til Akureyrar ... Lesa »

Sjálfsprottin spévísi í Hofi

Akureyrska hljómsveitin Sjálfsprottin Spévísi efnir til tónleika þann 22. Desember næstkomandi klukkan 21:00 í Menningarhúsinu Hofi. Hljómsveitin fagnar útgáfu á sinni fyrstu breiðskífu sem verður ... Lesa »

Mamma fékk aldrei útborgað

Ég er elstur átta systkina og erum við flest fædd með eins eða tveggja ára millibili. Ég man vel eftir mér þegar ég ég var svona fimm ára og lífið eftir það er gott í minningunni. Mamma mín, Guðrún ... Lesa »

Lidwina Charpentier sýnir í Deiglunni á Akureyri

Listakonan Lidwina Charpentier dvelur í gestavinnustofu Gilfélagsins á Akureyri í desembermánuði. Hún er fædd í Sviss, er af belgískum ættum og býr í Hollandi. Um viðfangsefni sitt segir ... Lesa »

Norðurgata 6

Hús vikunnar: Norðurgata 6

Norðurgötu 6 reisti Metúsalem Jóhannsson árið 1898 á lóð þess sem hann fékk á horni Norðurgötu og "fyrirhugaðrar þvergötu" sem síðar fékk nafnið Gránufélagsgata. En húsið er einlyft timburhús á háum ... Lesa »

Sigurður Bogi Ólafsson

Emil syngur Mamma þarf að djamma

Sigurður Bogi Ólafsson er 11 ára og í vetur er hann betur þekktur sem Emil í Kattholti úr Freyvangsleikhúsinu. Siggi Bogi er 11 ára og í 6. bekk í Naustaskóla, honum er margt til lista lagt og þegar ... Lesa »

1508467_10151886666242800_1190090637_n

Jólasýning á rússneskum teiknimyndum

Um næstu helgi verða barnasýningar á rússneskum teiknimyndum í sýningarsal Ungmenna-Hússins á 4. hæð Rósenborgar. Myndirnar eru allar án tals og því er rússneskukunnátta ekki nauðsynleg til þess að ... Lesa »

Andrea Hjálmsdóttir

Hvatning til akureyrskra kvenna

Mánudaginn 2. desember var opinn íbúafundur haldinn í Hofi þar sem kynntar voru tillögur að nýju skipulagi fyrir miðbæ Akureyrar. Tillögurnar eru að mínu mati mjög fínar og hefur hópurinn sem unnið ... Lesa »

Ármann og Brogan á sviði

Miðaldra skólastjóri gerist atvinnudansari

Ármann Einarsson hefur látið af störfum sem skólastjóri í tónlistarskólanum á Dalvík og starfar nú sem atvinnudansari. Hann er þriggja barna faðir, 48 ára gamall, 172 sentímetrar á hæð og með bumbu og ... Lesa »

Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir

Heilandi tónar gongsins

Gongslökun hefur notið æ meiri vinsælda hér á Íslandi á undanförnum árum sem leið til að kyrra hugann og slaka djúpt á. En hvað er það við þessa tegund slökunar sem hefur svona góð áhrif á ... Lesa »

Hanna Þórsteinsdóttir

Opið bréf til Lilju Bjarkar

Mig langar til að byrja á því að svara þeirri vangaveltu þinni um hvort það geti verið að þú sért karlremba. Ég held nú ekki en aftur á móti gæti ég trúað því og finnst reyndar ansi augljóst að þú ... Lesa »

Hildur Eir Bolladóttir. Mynd: Guðrún Hrönn

Fannst ekkert töff að vera prestur

Þegar skipuleggjendur þessa viðburðar höfðu samband við mig og báðu mig um að tala hér reyndist mjög knýjandi að finna einhvern titil á þetta spjall, já bara upp á auglýsingar að gera. Ég hef ... Lesa »

Lilja Björk Þuríðardóttir

Opið bréf til Íslendinga

Ég er búin að vera að lesa í gegnum allskonar greinar núna síðastliðna daga sem allar eiga það sameiginlegt að lýsa því hvað konur eiga nú óskaplega bágt. Við erum endalaus fórnarlömb hinna vondu ... Lesa »

Jólatónleikar Karlakórs Akureyrar verða í Akureyrarkirkju

Karlar og stúlkur saman á jólatónleikum

Hátíð í bæ! Jólatónleikar í Akureyrarkirkju 12. desember. Karlakór Akureyrar-Geysir og Stúlknakór Akureyrarkirkju taka höndum saman á hátíðlegum og fallegum jólatónleikum í Akureyrarkirkju á miðri ... Lesa »

Sædís Ingimarsdóttir

Kæri Bjarni Benediktsson

Eftir fréttaflutning í sjónvarpinu í gær varð ég bara að senda þér línu. Eftir því sem mér skilst þá er stefnan að draga saman í barna- og vaxtabótum og ég eyddi meirihlutanum af gærkvöldinu í að ... Lesa »

Prins Polo

Síðustu sérfræðingar ársins eru Prins Póló

Fjórðu tónleikar í tónleikaröðinni Sérfræðingar að Sunnan verða haldnir á sviði menningarhússins Hofs á Akureyri fimmtudaginn 12. desember. Hljómsveitin Prins Póló mun þar stíga á stokk ásamt ... Lesa »

Herdís Júlía

Þú kveikir alveg í mér maður!

Ágæti karlmaður! Með þessu litla bréfi vildi ég bara vinsamlega biðja þig að hætta spila á gítar, ekki dirfast til að vera með vöðva og í guðanna bænum ekki sýna góðmennsku, hvað þá segja ... Lesa »

Sóley Björk Stefánsdóttir

Breytingar framundan hjá akv.is

Þann 4. apríl 2012 fór vefurinn akv.is/akureyrivikublad.is fyrst í loftið. Það var undirrituð ásamt Völundi Jónssyni sem stóð að því í samráði við Björn Þorláksson, ritstjóra Akureyrar vikublaðs. Þá ... Lesa »

Frá haustmarkaði Grasrótar

Desembermarkaður Grasrótar

Um helgina, 7. og 8. desember, geta Akureyringar og gestir bæjarins komið á árlegan desembermarkað Grasrótar að Hjalteyrargötu 20. Þar verða opnar vinnustofur þar sem félagar í Grasrót kynna starfsemi ... Lesa »

Jenný Lára

Elska – einleikur eftir Jennýju Láru Arnórsdóttur

Eru einkenni sannrar ástar þau sömu í dag og um miðbik síðustu aldar? Hafa þau breyst? Eða hefur skilgreining okkar á sannri ást breyst í gegnum tíðina? Hvað hefur breyst? Einleikurinn, Elska, er ... Lesa »

Glódís Ingólfsdóttir

Hvaða afleiðingar hefur klámvæðing?

Á síðustu árum hefur klámvæðing vaxið hratt í samfélaginu okkar og nær alltaf til yngri hópa. Klám er farið að smeygja sér inn í okkar daglega líf án þess að við tökum eftir því. Sá hópur fólks sem ... Lesa »

Skoða meira