Fjórðu tónleikar í tónleikaröðinni Sérfræðingar að Sunnan verða haldnir á sviði menningarhússins Hofs á Akureyri fimmtudaginn 12. desember. Hljómsveitin Prins Póló mun þar stíga á stokk ásamt norðlensku hljómsveitinni Heflarnir. Tónleikarnir hefjast kl. 20:30 og er miðaverð er 2.000 kr. Námsmenn og eldri borgarar fá af því 25% afslátt.
Sérfræðingar að Sunnan hafa glatt Norðlendinga með tónlist sinni og snilld frá því snemma í haust og ekkert lát virðist vera á vilja þeirra að deila út kunnáttu sinni til áhugasamra. Smekkfyllum sviðið 12. desember og mögulega vilja fleiri sérfræðinga láta ljós sitt skína á komandi ári!


















