Kæri Bjarni Benediktsson

Sædís Ingimarsdóttir

Eftir fréttaflutning í sjónvarpinu í gær varð ég bara að senda þér línu. Eftir því sem mér skilst þá er stefnan að draga saman í barna- og vaxtabótum og ég eyddi meirihlutanum af gærkvöldinu í að hugsa um hvernig ég gæti hjálpað þér í þessum niðurskurði. Viti menn ég fékk bara helling af hugmyndum. Nú hvað varðar barnabæturnar sem eru jú hugsaðar fyrir útgjöldum barna að þá er ég með snilldar hugmyndir.

Nr. 1. Barnið mitt borðar í skólamötuneytinu á daginn og kannski er bara besta hugmynd að ég sendi hana með ávöxt sem hún getur borðað í hádeginu og svo skyr í kvöldmatinn. Það verður þá bara að hafa það að hún fái enga heita máltíð á daginn. Verður etv. smá þróttlaus en hlýtur að lifa það af. Helduru það ekki?

Nr. 2. Nú þegar versla ég mikið af fatnaði af Hjálpræðishernum og Rauða krossinum, ja allt nema nærföt og sokka en verð nú ekki í vandræðum með það. Stoppa bara í nærfötin sem finnast þar og hætti að versla nýtt á barnið mitt þó svo hana langi í það og finnist hún verða fyrir aðkasti og einelti í skólanum ef hún eignast ekki eitthvað nýtt eins og bekkjarfélagarnir.

Nr. 3. Áhugamál hennar sker ég en meira niður, eða bíddu nú við hef nú reyndar nú þegar þurft að fá aðstoð hjá hjálparstofnunum til að hún geti stundað það eina sem hún hefur áhuga á en hún verður bara þá að sleppa. Hún getur bara verið heima og horft út um gluggann í staðinn, það hlýtur að koma í veg fyrir leiklistarnám. Hvort hún útskrifast verður bara að koma í ljós, ég hlýt að geta rissað niður á blað eitthvert brottfaraskírteini í vor. Því ég myndi nú frekar reyna að eyða tómstundastyrknum í mat heldur en að senda hana í leiklist ég verð nú að eiga fyrir ávöxtunum og skyrinu.

Nr. 4. Já við höfum nú verið svo stórtækar mæðgurnar að leyfa okkur einu sinni til tvisvar í mánuði að fara út að borða ef kalla mætti, farið í nesti og keypt okkur pylsu. Hver þarf svo sem að láta svoleiðis eftir sér, þvílíkt bull. Nóg af skyri og ávöxtum heima í ísskáp.

Nr. 5. Ef dóttir mín veikist þá dríf ég mig með hana til læknis og fæ bót fyrir hana. Hver þarf svo sem á því að halda? Ég fæ bara lánaða bók um íslenskar jurtir á bókasafninu, verð dugleg í sumar að tína og malla og tilbúin fyrir allt sem koma skal í veikindum. Krosslegg svo bara fingurna og vona að hún verði ekki veik fyrr en allt er klárt.

Er þetta ekki bara snilldarráð?

Og svo kom ég að vaxtabótum og þar get ég sko sparað. Nú allir ofnar í húsinu eru á þremur til að hafa jafnan hita en ég set þá bara niður í einn og ef aftur gerir nær tuttugu gráðu frost eins og verið hefur undanfarna daga hérna á Akureyri þá verðum við í úlpum og húfum inni í húsi og sofum í svefnpokum. Það er snilld finnst þér ekki? Já og svo bý ég í gömlu húsi þar sem þyrfti að fara að gera við gluggana og laga rifur meðfram sem blæs inn ef gerir mikið rok, ég fæ mér bara kíttitúbu og skelli í rifurnar, já og bætum teppi ofaná svefnpokann þá er þetta bara orðið kósí er það ekki?

Og af því að það eru nú að koma jól og svo mikið til að hlakka til þá er kanski best að sleppa þeim hátíðarhöldum, það er hvort sem er bara peningaeyðsla að vera eitthvað að reyna að gera vel við sig. Gefa barninu sínu eitthvað fallegt og gleðja þá sem standa mér næst og manni þykir vænt um.

Þannig að þá er það ákveðið, engin jól, engin tilhlökkun, engar gjafir og eða gleði hér í desember. Látum bara eins og það sé janúar og sleppum öllu tilstandi fáum okkur skyr, rennum upp svefpokanum og höfum það voða voða kósí. Vona svo að þú eigir gleðileg jól og hafið það gott yfir hátíðirnar.

Já að lokum að þá langar mig endilega að segja þér að ég á svolítið af fiski í kistunni og langar að gefa með mér. Þannig að ef þú ert í vandræðum um þessar mundir endilega sendu mér línu og ég skal senda þér nokkur flök. Það er að segja ef ég finn einhvern sem getur skutlað til þín. Ég veit að þið alþingismenn hafið nú ekki mikið á milli handana og verðið að velja vel og hafna þegar kemur að vali á milli þess sem skal leyfa sér.

Vona að með þessum tillögum leggi ég mitt af mörkum og ríkistjórnin geti skorið niður í þessum málaflokki um 600 milljónir samviskulaust. Haldi svo ótrauð áfram að tryggja að lágtekjufólk og barnafjölskyldur séu ekki að fara offari í eyðslu á einhverjum óþarfa, s.s mat, lyfjum og nauðsynjum til að halda lífi í sér og sínum.

Kveðja Sædís Inga Ingimarsdóttir, Akureyri

Michael Clarke

The Icelandic Economic Miracle-Price Indexing!

Back in 1973 we bought our first flat. Significantly it was the same day that the Vestmann Isles erupted. We toddled down to the builder’s office and paid our deposit. That was all the money we had ... Lesa »

Að brjóta múr óttans

Flughræðsla er talin hrjá allt að 20% fullorðinna. Hefur verið sýnt fram á samband milli vaxandi flughræðslu og aukinnar ábyrgðarkenndar, t.d. þegar fólk eignast börn. Oddur Helgi Halldórsson leið ... Lesa »

Sigrún Stefánsdóttir ávarpar friðarblysför

Blysför í þágur friðar á Akureyri Þorláksmessu kl. 20 Gengið frá Samkomuhúsinu Hafnarstræti út á Ráðhústorg. Ávarp: dr. Sigrún Stefánsdóttir fjölmiðlafræðingur. Söngur: Söngsystur úr MA Kerti ... Lesa »

Jólatónleikar og vínylplötumarkaður á Akureyri Backpackers!

Á morgun miðvikudag verða síðustu miðvikudagstónleikar Backpackers á þessu ári, þegar Karl Henry heldur tónleika sem verða tileinkaðir jólunum. Tónleikarnir hefjast klukkan 20:30 og er frítt ... Lesa »

Hugleikur aftur á Akureyri

Listamaðurinn, uppistandarinn og þáttagerðarmaðurinn Hugleikur Dagsson mun fara með uppistandið Djókaín í Hofi fimmtudaginn 19. desember kl. 20. Þetta er í annað sinn sem Hugleikur kemur til Akureyrar ... Lesa »

Sjálfsprottin spévísi í Hofi

Akureyrska hljómsveitin Sjálfsprottin Spévísi efnir til tónleika þann 22. Desember næstkomandi klukkan 21:00 í Menningarhúsinu Hofi. Hljómsveitin fagnar útgáfu á sinni fyrstu breiðskífu sem verður ... Lesa »

Mamma fékk aldrei útborgað

Ég er elstur átta systkina og erum við flest fædd með eins eða tveggja ára millibili. Ég man vel eftir mér þegar ég ég var svona fimm ára og lífið eftir það er gott í minningunni. Mamma mín, Guðrún ... Lesa »

Lidwina Charpentier sýnir í Deiglunni á Akureyri

Listakonan Lidwina Charpentier dvelur í gestavinnustofu Gilfélagsins á Akureyri í desembermánuði. Hún er fædd í Sviss, er af belgískum ættum og býr í Hollandi. Um viðfangsefni sitt segir ... Lesa »

Norðurgata 6

Hús vikunnar: Norðurgata 6

Norðurgötu 6 reisti Metúsalem Jóhannsson árið 1898 á lóð þess sem hann fékk á horni Norðurgötu og "fyrirhugaðrar þvergötu" sem síðar fékk nafnið Gránufélagsgata. En húsið er einlyft timburhús á háum ... Lesa »

Sigurður Bogi Ólafsson

Emil syngur Mamma þarf að djamma

Sigurður Bogi Ólafsson er 11 ára og í vetur er hann betur þekktur sem Emil í Kattholti úr Freyvangsleikhúsinu. Siggi Bogi er 11 ára og í 6. bekk í Naustaskóla, honum er margt til lista lagt og þegar ... Lesa »

1508467_10151886666242800_1190090637_n

Jólasýning á rússneskum teiknimyndum

Um næstu helgi verða barnasýningar á rússneskum teiknimyndum í sýningarsal Ungmenna-Hússins á 4. hæð Rósenborgar. Myndirnar eru allar án tals og því er rússneskukunnátta ekki nauðsynleg til þess að ... Lesa »

Andrea Hjálmsdóttir

Hvatning til akureyrskra kvenna

Mánudaginn 2. desember var opinn íbúafundur haldinn í Hofi þar sem kynntar voru tillögur að nýju skipulagi fyrir miðbæ Akureyrar. Tillögurnar eru að mínu mati mjög fínar og hefur hópurinn sem unnið ... Lesa »

Ármann og Brogan á sviði

Miðaldra skólastjóri gerist atvinnudansari

Ármann Einarsson hefur látið af störfum sem skólastjóri í tónlistarskólanum á Dalvík og starfar nú sem atvinnudansari. Hann er þriggja barna faðir, 48 ára gamall, 172 sentímetrar á hæð og með bumbu og ... Lesa »

Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir

Heilandi tónar gongsins

Gongslökun hefur notið æ meiri vinsælda hér á Íslandi á undanförnum árum sem leið til að kyrra hugann og slaka djúpt á. En hvað er það við þessa tegund slökunar sem hefur svona góð áhrif á ... Lesa »

Hanna Þórsteinsdóttir

Opið bréf til Lilju Bjarkar

Mig langar til að byrja á því að svara þeirri vangaveltu þinni um hvort það geti verið að þú sért karlremba. Ég held nú ekki en aftur á móti gæti ég trúað því og finnst reyndar ansi augljóst að þú ... Lesa »

Hildur Eir Bolladóttir. Mynd: Guðrún Hrönn

Fannst ekkert töff að vera prestur

Þegar skipuleggjendur þessa viðburðar höfðu samband við mig og báðu mig um að tala hér reyndist mjög knýjandi að finna einhvern titil á þetta spjall, já bara upp á auglýsingar að gera. Ég hef ... Lesa »

Lilja Björk Þuríðardóttir

Opið bréf til Íslendinga

Ég er búin að vera að lesa í gegnum allskonar greinar núna síðastliðna daga sem allar eiga það sameiginlegt að lýsa því hvað konur eiga nú óskaplega bágt. Við erum endalaus fórnarlömb hinna vondu ... Lesa »

Jólatónleikar Karlakórs Akureyrar verða í Akureyrarkirkju

Karlar og stúlkur saman á jólatónleikum

Hátíð í bæ! Jólatónleikar í Akureyrarkirkju 12. desember. Karlakór Akureyrar-Geysir og Stúlknakór Akureyrarkirkju taka höndum saman á hátíðlegum og fallegum jólatónleikum í Akureyrarkirkju á miðri ... Lesa »

Sædís Ingimarsdóttir

Kæri Bjarni Benediktsson

Eftir fréttaflutning í sjónvarpinu í gær varð ég bara að senda þér línu. Eftir því sem mér skilst þá er stefnan að draga saman í barna- og vaxtabótum og ég eyddi meirihlutanum af gærkvöldinu í að ... Lesa »

Prins Polo

Síðustu sérfræðingar ársins eru Prins Póló

Fjórðu tónleikar í tónleikaröðinni Sérfræðingar að Sunnan verða haldnir á sviði menningarhússins Hofs á Akureyri fimmtudaginn 12. desember. Hljómsveitin Prins Póló mun þar stíga á stokk ásamt ... Lesa »

Herdís Júlía

Þú kveikir alveg í mér maður!

Ágæti karlmaður! Með þessu litla bréfi vildi ég bara vinsamlega biðja þig að hætta spila á gítar, ekki dirfast til að vera með vöðva og í guðanna bænum ekki sýna góðmennsku, hvað þá segja ... Lesa »

Sóley Björk Stefánsdóttir

Breytingar framundan hjá akv.is

Þann 4. apríl 2012 fór vefurinn akv.is/akureyrivikublad.is fyrst í loftið. Það var undirrituð ásamt Völundi Jónssyni sem stóð að því í samráði við Björn Þorláksson, ritstjóra Akureyrar vikublaðs. Þá ... Lesa »

Frá haustmarkaði Grasrótar

Desembermarkaður Grasrótar

Um helgina, 7. og 8. desember, geta Akureyringar og gestir bæjarins komið á árlegan desembermarkað Grasrótar að Hjalteyrargötu 20. Þar verða opnar vinnustofur þar sem félagar í Grasrót kynna starfsemi ... Lesa »

Jenný Lára

Elska – einleikur eftir Jennýju Láru Arnórsdóttur

Eru einkenni sannrar ástar þau sömu í dag og um miðbik síðustu aldar? Hafa þau breyst? Eða hefur skilgreining okkar á sannri ást breyst í gegnum tíðina? Hvað hefur breyst? Einleikurinn, Elska, er ... Lesa »

Glódís Ingólfsdóttir

Hvaða afleiðingar hefur klámvæðing?

Á síðustu árum hefur klámvæðing vaxið hratt í samfélaginu okkar og nær alltaf til yngri hópa. Klám er farið að smeygja sér inn í okkar daglega líf án þess að við tökum eftir því. Sá hópur fólks sem ... Lesa »

Skoða meira