Hús vikunnar: Norðurgata 6

Norðurgata 6

Norðurgötu 6 reisti Metúsalem Jóhannsson árið 1898 á lóð þess sem hann fékk á horni Norðurgötu og „fyrirhugaðrar þvergötu“ sem síðar fékk nafnið Gránufélagsgata. En húsið er einlyft timburhús á háum steinkjallara og með portbyggðu háu risi og klætt steinblikki. Miðjukvistur er á húsinu framantil fyrir miðju og er þetta ein algengasta gerð lítilla timburhúsa frá ofanverðri 19.öld. Einhvers staðar heyrði ég að líklega hefði húsið verið hækkað upp og steyptur undir það nýr kjallari en það var gert með húsin skáhallt á móti, Norðurgötu 11 og 13 uppúr 1920.

Þá er líklegt að steinblikk hafi verið sett á húsið um svipað leiti en sú klæðning fór að berast hingað á því bili. Eftir 1910 voru flest timburhús nefnilega varin með járni eða steinskífu í færri tilfellum en brunarnir miklu sátu fast í mönnum og þetta ein öflugasta eldvörn þessa tíma. Það er, að ef kviknaði í, þá brynni aðeins eitt hús í stað sjö eða tíu.

Á baklóð hússins stóð einlyft smáhús með lágu risi, óvíst með byggingarár en því var breytt í íbúð 1922 af Guðrúnu Jónsdóttur en þá var eigandi hússins Sölvi Halldórsson. Bakhúsið, Norðurgata 6b var lengst af íbúðarhús en það var rifið um 1996. Sú lóð stóð um nokkurra ára skeið auð og í órækt eftir að húsið var rifið en var fyrir fáeinum árum aftur sameinuð við lóð framhússins.

Norðurgata 6 er sennilega það hús í þessari þrenningu 2-6 sem minnst hefur verið breytt frá upphafi en öll eru húsin sviplík að framanverðu en á nr. 2 hefur risi verið lyft að aftan og það hefur einnig verið gert á nr.4 ásamt viðbyggingu bakatil. Húsið er í góðri hirðu og hefur líkast til alla tíð verið vel við haldið, það er t.d. nýmálað síðan síðsumars 2013.

Umhverfi hússins er einnig einkar áhugavert en þar hafa núverandi eigendur, Sigurvin Jónsson og Perla Fanndal sett upp mikinn og stórglæsilegan búgarð; þarna er eitt alstærsta og veglegasta hænsna- og fuglabú á Akureyri auk töluverðrar ræktunar í gróðurhúsum. Þessi mynd er tekin í morgunsólinni þann 10.september síðastliðin.

Áður hef ég fjallað um hina skemmtilegu röð við Norðurgötu 2-6 hér og hér

Arnór Bliki Hallmundsson

Heimildir: Guðný Gerður Gunnarsdóttir og Hjörleifur Stefánsson (1995). Oddeyri Húsakönnun. Minjasafnið á Akureyri.

13 sagt upp hjá Hvammi í Hrísey

Útgerðarfélagið Hvammur í Hrísey hefur ákveðið að segja upp öllu starfsfólki sínu í landi frá og með næstu mánaðarmótum. Við fyrirtækið starfa 13 í ... Lesa »

Kristín Aðalsteinsdóttir

Ástandið, hermennirnir og gula rósin

Haustið 1997 var ég á leið til Bristol til ársdvalar en var ekki búin að finna mér húsnæði. Hér voru þá staddir hjá mér gestir, Mary og Gordon Halford ... Lesa »

Innritunargjald á skátamót 54.000kr.

Landsmót skáta er haldið á víxl við Úlfljótsvatn og á Hömrum á Akureyri. Í ár verður landsmótið norðan heiða. Búist er við um 2.000 þátttakendum á ... Lesa »

Verkamenn skoða rétt sinn

Gangnagerðarmenn Ósafls sem vinna við gerð Vaðlaheiðarganga hafa kannað hver réttur sinn er varðandi starfsskilyrði í göngunum. Mikill hiti er við ... Lesa »

Guðrún Veiga

Afrekskonan Guðrún Veiga.

Ég er ekki og hef aldrei verið afrekskona þegar kemur að íþróttum. Svo langt því frá. Ég er alveg þarna á öndverðu meiði við afreksmanneskjuna. Eins ... Lesa »

Hljómsveitin Kjass. Mynd: Nanna Dís

Til ömmu

Hljómsveitin Kjass sendi nýlega frá sér sín fyrstu lög en hljómsveitin hefur starfað í um hálft ár. Fanney Kristjánsdóttir, söngkona sveitarinnar er ... Lesa »

Rósenborg

Erlendar hljómsveitir spila á Akureyri

Fjórar erlendar hljómsveitir eru á Akureyri þessa vikuna og munu halda tvenna tónleika. Fyrri tónleikarnir eru í kvöld í Rósenborg kl 20:00 og þeir ... Lesa »

Söngkeppni VMA á fimmtudagskvöld

Fjórtán lög hafa verið skráð til þátttöku í Söngkeppni VMA sem verður haldin í Gryjunni, sal skólans nk. fimmtudagskvöld, 20. febrúar. Sigurvegari í ... Lesa »

Skytturnar á bekkinn

Það er október 2013, um 130 þingfulltrúar sitja á þingi Starfsgreinasambands Íslands á Akureyri frá nítján aðildarfélögum sambandsins. Einhugur er á ... Lesa »

Hús vikunnar: Brekkugata 9.

Ég hef flakkað frá Eyrinni í Innbænum og upp í Þorp í greinum síðustu vikna en nú berum við niður í Miðbænum en neðarlega við Brekkugötuna standa mörg ... Lesa »

Sögur kortlagðar í S-Þingeyjarsýslu

Trausti Dagsson, meistaranemi í hagnýtri þjóðfræði, hefur útbúið Sagnakort sem er samansafn fróðleiks og gagna sem ætlað er að varpa ljósi á lífið í ... Lesa »

Var farið að lögum?

Álitamál er hvort Umhverfisráðneytið fari að lögum þegar samþykktir um hundahald í sveitarfélögum eru undirritaðar í ráðuneytinu. Þann 14. mars ... Lesa »

,,Sek“ valið á Norræna sviðslistadaga

Leikritið Sek eftir Hrafnhildi Hagalín, í leikstjórn Ingibjargar Huldar Haraldsdóttur hefur verið valið til þátttöku fyrir Íslands hönd í ... Lesa »

Slökkviliðið. Mynd úr safni

Eldur við íþróttahús KA

Laust eftir klukkan átta í gærkveldi fékk slökkvilið Akureyrar tilkynningu um að eldur væri við kjallaradyr KA heimilisins. Kviknað hafði í ... Lesa »