Ármann Einarsson hefur látið af störfum sem skólastjóri í tónlistarskólanum á Dalvík og starfar nú sem atvinnudansari. Hann er þriggja barna faðir, 48 ára gamall, 172 sentímetrar á hæð og með bumbu og hefur aldrei hlotið dansþjálfun. Fyrir ári síðan kom hann að máli við tengdadóttur sína, danshöfundinn Brogan Davison, og skýrði henni frá því að sig hefði alltaf dreymt um að dansa samtímadans á sviði. Úr varð að þau Brogan og Ármann sömdu dansverk sem þau frumsýndu á Akureyri fyrr á þessu ári. Sýningin var svo aftur sýnd á alþjóðlegu leiklistarhátíðinni LÓKAL í Reykjavík í ágúst.
Þar sýndu útsendarar erlendra listahátíða sýningunni áhuga og vill nú Ármann elta drauminn sem lengst og dansa fyrir sem flesta. Áður en Ármann eltir drauminn til útlanda fá Akureyringar tækifæri til þess að upplifa einlægt og bráðfyndið leikhúsverki um langþráða drauma, sköpunarferlið og efann sem hellist yfir mann þegar minnst varir. Er dans fyrir alla?
Á næsta ári mun Ármann leggja af stað í heimsreisu með samtíma dansverkinu Dansaðu fyrir mig. Á meðal viðkomustaða eru Ástralía, Kanada, og Þýskaland en ferðalaginu líkur svo með mánaðar dvöl í Danmörku þar sem sýndar verða 15 sýningar.
Höfundur: Brogan Davison
Leikstjóri: Pétur Ármansson
Dansarar: Ármann Einarsson og Brogan Davison
Sýnt í Rýminu hjá Leikfélagi Akureyrar
1. sýning - 13. desember - 20:00
2. sýning - 14. desember - 20:00
Miðar: www.leikfelag.is / midasala@leikfelag.is / 4 600 200
Verð: 2.900 kr.


















