Þann 4. apríl 2012 fór vefurinn akv.is/akureyrivikublad.is fyrst í loftið. Það var undirrituð ásamt Völundi Jónssyni sem stóð að því í samráði við Björn Þorláksson, ritstjóra Akureyrar vikublaðs. Þá voru átta mánuðir liðnir frá því að fyrsta tölublað Akureyrar vikublaðs var gefið út og viðtökur bæjarbúa við blaðinu höfðu verið afar góðar enda margir sem töldu að gagnrýnin blaðamennska ætti ekki bara heima í stórborgum og á landsvísu.
Það var mat okkar sem stóðum að vefnum að það væri einnig kominn tími til að hrista upp í netmiðlun á Norðurlandi og að mikil þörf væri fyrir netmiðil sem sinnti upplýsingaflæði alla daga vikunnar. Það mat reyndist á rökum reist því viðtökurnar við miðlinum voru gríðarlega góðar og örfáum vikum eftir opnun mældist vefurinn 19. mest sótti vefur landsins með rúmlega 21.000 notendur og tveim mánuðum síðar mældist hann 11. mest sótti vefur landsins með tæplega 33.000 notendur þá vikuna. Efnið samanstóð af fréttum sem ritstjóri vefjarins vann, fréttum úr Akureyri vikublaði, fréttum sem Björn Þorláksson vann beint inn á vefinn, fréttatilkynningum og síðast en ekki síst aðsendum pistlum og greinum.
Það er þó ekki allt unnið með því að lesendur séu ánægðir með vefinn því mikil vinna liggur að baki öflugum fréttamiðli og þrátt fyrir mikla aðsókn hafa auglýsendur fæstir áttað sig á styrkleikum vefmiðla til auglýsinga. Þetta á ekkert sérstaklega við um norðlensk fyrirtæki heldur fyrirtæki um allt land því þrátt fyrir að Íslendingar séu afar framsæknir hvað varðar netnotkun þá er markaðsfólk fyrirtækja mun aftar en kollegar þeirra í nágrannalöndunum. Það virðist því sem að markaðurinn sé ekki tilbúinn fyrir vefmiðlun enn sem komið er og því er nauðsynlegt að gera ákveðnar breytingar á akv.is.
Greinaskrif almennings hafa aukist til muna síðustu misseri. Það er ekki langt síðan nánast allir greinaskrifarar í blöðum almennt voru karlmenn á miðjum aldri sem langflestir skrifuðu á pólitískum forsendum. Nú er það allskonar fólk á öllum aldri sem skrifar um allskonar málefni. Þetta er gríðarlega mikilvægt því opinber umræða um samfélagsmál á ekki að vera á forsendum afmarkaðs hóps um afmörkuð málefni heldur á forsendum okkar allra um allskonar málefni.
Það verður því svo hér eftir að vefurinn verður tileinkaður innsendum greinum og eru lesendur hvattir til að senda greinar og pistla ásamt mynd á netfangið soley@akv.is. Ekkert gerir til þó greinarnar séu einnig birtar í öðrum miðlum. Greinar verða birtar undir nafni og mynd nema séstakar ástæður séu til annars. Einnig verða birtar upplýsingar um viðburði sem senda má ásamt mynd á sama netfang.
Sóley Björk Stefánsdóttir
ritstjóri akv.is


















