Mamma fékk aldrei útborgað

Ég er elstur átta systkina og erum við flest fædd með eins eða tveggja ára millibili. Ég man vel eftir mér þegar ég ég var svona fimm ára og lífið eftir það er gott í minningunni.

Mamma mín, Guðrún Ólafsdóttir, ættuð frá Vopnafirði, var 21 árs þegar ég fæddist og voru þá þau pabbi, Ásgeir Halldórsson, gift.

Ég ætla ekki að skrifa um uppvöxt minn eða dásamlegt samneyti við pabba, heldur er það mamma sem er mér kærust við þessar skriftir. Ég þurfti að vera orðinn fullorðinn til að uppgötva það hve mikill þáttur mömmu var í uppeldi mínu og okkar systkinanna.

Þegar ég fór að vinna sjálfur, stimpla mig inn og út úr vinnunni og sjá fyrir mér, fór ég að hugsa um vinnuframlag mömmu á heimili okkar.

Hún þurfti ekki að stimpla sig inn eða út því hún var alltaf í vinnu og fékk aldrei lögboðinn hvíldartíma. Þegar við krakkarnir komum á fætur til að fara í skólann var mamma að sjóða hafragraut í stórum potti og til þess að svo gæti verið þurfti hún að fara á fætur eigi síðar en kl. 07.00.

Við skyldum fá staðgóðan morgunmat áður en við færum í skólann.

Þegar allir voru farnir í skólann og pabbi vinnuna þurfti hún að vaska upp, búa um rúm, taka til í íbúðinni og þvo skítug föt af öllum hópnum. Allir komu svo heim í hádeginu, pabbi úr vinnunni og við krakkarnir úr skólanum.

Þá var hádegismatur og alltaf heit máltíð.

Engin uppþvottavél
Þrátt fyrir það að pabbi keypti flest heimilistæki til að létta mömmu störfin þá eignaðist hún aldrei uppþvottavél þannig að þegar allir voru farnir í vinnu og skóla þurfti hún að vaska upp eftir stóra máltíð á stóru heimili.

Við komum svo úr skóla seinnipartinn og þá var alltaf kakó eða mjólk og smurt brauð. Mamma smurði handa öllum. Eftir kaffi tók við heimanámið hjá okkur krökkunum og fylgdist mamma með því að allt væri vel unnið fyrir skólann. Hún hafði fallega rithönd og ætlaðist til þess af okkur að við skrifuðum vel.

Kvöldmatur var svo kl. sjö og alltaf eins og í hádeginu, heit máltíð.

Systur mínar voru duglegar að hjálpa henni við uppvaskið á kvöldin en til þess var ekki ætlast af okkur strákunum. Einn dagur var þó undanskilinn en það var aðfangadagskvöld.

Þá skyldu strákarnir vaska upp.

Á kvöldin var mamma oftast að prjóna eða sauma og gera við föt af okkur. Svo þurfti að taka inn þvott og strauja því við skyldum fara í hreinum og góðum fötum í skólann á hverjum morgni.

Oftast var kvöldkaffi um kl. Tíu og þá drukku fullorðnir kaffi en börnin mjólk og etið var eitthvert brauð. Síðan fórum við að sofa en alltaf var mamma ennþá á fótum þegar við sofnuðum og það var stundum seint. Svona var alla daga vikuna nema á sunnudögum þá fór mamma yfirleitt ekki á fætur fyrr en um kl. níu.

Samkvæmt þessu vann mamma sautján tíma á dag sex daga vikunnar að minnsta kosti en aðeins fimmtán á sunnudögum. Þetta gerir a.m.k. hundrað og sautján tíma á viku en hún fékk aldrei útborgað.

Hún fékk aldrei nein laun en náði þó að fá ellistyrk í um það bil eitt ár áður en hún lést.

Mamma hafði alltaf svokallaða peningabuddu og í hana setti pabbi, sem var eina fyrirvinnan, peninga fyrir mjólk, brauði o.fl. sem keypt var í KEA hverfisbúðinni.

Nú nálgast jólin með öllu því sem þeim fylgir. Hjá mömmu var margt sem fylgdi jólunum. Það var bakað og það mikið og einnig var allt þvegið hátt og lágt. Þá lengdist vinnudagurinn alltaf eitthvað og um leið styttist hvíldartími hennar. Mamma naut jólanna með öllu því amstri sem þeim fylgdu.

Ein föst venja var þó alltaf hjá henni og það var á Þorláksmessa. Þá um kvöldið fór hún alltaf í bæinn til að kaupa það sem hana langaði í. Hún naut þess að ganga á milli búða, skoða og kaupa það sem hún gat. Hún kom yfirleitt heim um miðnætti, þreytt en ánægð.

Hún hafði gegnum árið sparað svolitla peninga til að geta keypt það sem hana langaði í. Þegar heim kom átti hún eftir það síðasta sem gera skyldi fyrir jólin og eflaust var farið að nálgast morgun aðfangadags þegar hún lagði sig. Hún var hins vegar komin á fætur á þegar við krakkarnir vöknuðum.

Ég fór mikið á mínum unglingsárum í útilegur með skátunum og alltaf sá mamma um að nægur matur væri meðferðis og ekki síður hlý og góð föt.

Barnungur hóf ég störf hjá lögreglunni. Þá áttum við bara einn einkennisbúning og oft var það eftir erfiðar vaktir að búningurinn var óhreinn og rifinn. Mamma sá hins vegar alltaf um að hann væri pressaður og fínn þegar næsta vakt hófst.

Þegar ég var um tvítugt var ég í skóla á vegum lögreglunnar í Danmörku. Þar stóð mér til boða að gerast lögreglumaður á Grænlandi í eitt ár ásamt nokkrum dönskum lögregluvinum mínum.

Launin áttu að vera mjög góð og einnig góð skattafríðindi. Ég hringdi heim í mömmu og sagði henni að ég væri að hugsa um þetta tilboð.

Hún svaraði strax og ákveðið. Þú ferð ekki að vinna sem lögreglumaður á Grænlandi. Að sjálfsögðu hlýddi ég því. Svona var mamma.

Minnumst mæðranna
Þegar ég rifja þetta upp hugsa ég um það hve mikið mæður þessa tíma lögðu til lífsins. Saga mömmu er ekkert einsdæmi.

Ég veit að flestar aðrar mæður voru í alveg sömu sporum og hún móðir mín. Ég skrifa þessar línur í minningu mömmu en bið um leið alla syni þessa lands að minnast mæðra sinna með miklum hlýhug og virðingu.

Ólafur Ásgeirsson
Höfundur er aðstoðaryfirlögregluþjónn emeritus

Pistillinn birtist áður í Vikudegi

Guðrún Veiga

Afrekskonan Guðrún Veiga.

Ég er ekki og hef aldrei verið afrekskona þegar kemur að íþróttum. Svo langt því frá. Ég er alveg þarna á öndverðu meiði við afreksmanneskjuna. Eins ... Lesa »

Hljómsveitin Kjass. Mynd: Nanna Dís

Til ömmu

Hljómsveitin Kjass sendi nýlega frá sér sín fyrstu lög en hljómsveitin hefur starfað í um hálft ár. Fanney Kristjánsdóttir, söngkona sveitarinnar er ... Lesa »

Rósenborg

Erlendar hljómsveitir spila á Akureyri

Fjórar erlendar hljómsveitir eru á Akureyri þessa vikuna og munu halda tvenna tónleika. Fyrri tónleikarnir eru í kvöld í Rósenborg kl 20:00 og þeir ... Lesa »

Söngkeppni VMA á fimmtudagskvöld

Fjórtán lög hafa verið skráð til þátttöku í Söngkeppni VMA sem verður haldin í Gryjunni, sal skólans nk. fimmtudagskvöld, 20. febrúar. Sigurvegari í ... Lesa »

Skytturnar á bekkinn

Það er október 2013, um 130 þingfulltrúar sitja á þingi Starfsgreinasambands Íslands á Akureyri frá nítján aðildarfélögum sambandsins. Einhugur er á ... Lesa »

Hús vikunnar: Brekkugata 9.

Ég hef flakkað frá Eyrinni í Innbænum og upp í Þorp í greinum síðustu vikna en nú berum við niður í Miðbænum en neðarlega við Brekkugötuna standa mörg ... Lesa »

Sögur kortlagðar í S-Þingeyjarsýslu

Trausti Dagsson, meistaranemi í hagnýtri þjóðfræði, hefur útbúið Sagnakort sem er samansafn fróðleiks og gagna sem ætlað er að varpa ljósi á lífið í ... Lesa »

Var farið að lögum?

Álitamál er hvort Umhverfisráðneytið fari að lögum þegar samþykktir um hundahald í sveitarfélögum eru undirritaðar í ráðuneytinu. Þann 14. mars ... Lesa »

,,Sek“ valið á Norræna sviðslistadaga

Leikritið Sek eftir Hrafnhildi Hagalín, í leikstjórn Ingibjargar Huldar Haraldsdóttur hefur verið valið til þátttöku fyrir Íslands hönd í ... Lesa »

Slökkviliðið. Mynd úr safni

Eldur við íþróttahús KA

Laust eftir klukkan átta í gærkveldi fékk slökkvilið Akureyrar tilkynningu um að eldur væri við kjallaradyr KA heimilisins. Kviknað hafði í ... Lesa »

Hildur Eir Bolladóttir. Mynd: Guðrún Hrönn

Forvitni getur bjargað hjónaböndum

  Mig langar til þess að tala um mikilvægi þess að vera forvitinn í hjónabandi. Það er mjög misjafnt hvaða augum fólk lítur þann ... Lesa »

43°heitt vatn sprautast úr vatnsæð í Vaðlaheiðargöngum

43°heitt vatn fór að flæða út úr stafni Vaðlaheiðarganga í hádeginu í dag. þetta gerðist þegar starfsmenn boruðu fyrir sprengiefni í göngunum. Þetta ... Lesa »

Reykvískt fyrirtæki kaupir 50% í Arctic Tours

Special Tours, sem staðsett er við gömlu höfnina í Reykjavík og sérhæfir sig í sjóferðum fyrir ferðamenn, hefur keypt helmingshlut í Arctic Sea Tours ... Lesa »

Skammsýni og skemmdarverk

Akureyri er fallegur bær en landlítill. Möguleikar bæjarbúa á útvist og hreyfingu eru fjölbreytilegir. Við eigum okkar Kjarnaskóg, við eigum ... Lesa »