Ágæti karlmaður!
Með þessu litla bréfi vildi ég bara vinsamlega biðja þig að hætta spila á gítar, ekki dirfast til að vera með vöðva og í guðanna bænum ekki sýna góðmennsku, hvað þá segja hetjusögur af sjálfum þér því það virkilega kveikir í mér. Þú skalt svo ekki voga þér að hafa minnstu ögn af rakspíra á þér því þá er voðinn vís! Ef þú gætir bara vinsamlega farið eftir þessum einföldu ráðum væri það frábært það er að segja ef þú vilt ekki að ég girnist þig.
Fyrir stuttu síðan átti ég samtal við ágætan mann um samskipti kynjanna, kynferðisofbeldi og fleira í þeim skemmtilega dúr. Við vorum sammála um ansi margt þó ekki allt. Jú við vildum bæði að ungmennum væri kennt meira um samskipti kynjanna sérstaklega þegar kemur að kynlífi. Það er jú alveg nauðsynlegt að fólk fái kennslu um þessi málefni og ég tel að það þurfi miklu meiri kennslu en ég hef fengið á minni 13 ára skólagöngu. Þessi ágæti karlmaður sagði þó eitt sem ég var alls ekki sammála og það er að konur ættu að sýna kynhvöt karla meiri skilning, ekki vera daðra alltaf svona við þá ef þær vilja ekki neitt meir. Stuttu eftir þennan ágæta punkt sem hann kom með enduðu samræður okkur þar sem mér varð ansi heitt í hamsi því ég var rosalega ósammála honum.
Ég ætla sko heldur betur ekki að taka ábyrgð á kynhvöt annarra. Ég get lofað ykkur því að ég ætla halda áfram að vera með rauðan varalit í þröngu rauðu leðurbuxunum mínum, þröngu kjólunum eða bolunum sem sýna vöxt minn ágætlega, ég er að fara hreyfa mig eins og ég vil þegar ég vil, hvort sem einhver karlmaður sé að horfa og kynþokkafullar hreyfingar mínar kveiki í honum og ég ætla halda áfram að vera kammó við karlmenn, sem sumir hverjir gætu tekið því sem daður, það er þeirra val en ég er þó ekki með neinu af þessu að bjóða upp á kynlíf þó ég hafi kveikt á kynhvöt einhvers. Því miður þá bara get ég einfaldlega ekki tekið ábyrgð á kynhvöt annarra því ég á nóg með mína eigin, believe me, I‘m a busy woman…
Að sjá mann hlaupa til og hjálpa einhverjum bágstöddum lætur mig kikna í hnjánum díses þá reynir nú aldeilis á sjálfstjórnina og ég verð að passa mig að ráðast ekki á greyið félagann sem var í sínu mesta sakleysi aðeins að gera góðverk. Það er nefnilega málið, þetta snýst ansi mikið um sjálfsstjórn og virðingu í garð annarra. Eftirfarandi setningar gætu komið að góðum notum ef þið lendið í fyrrnefndum aðstæðum „Nei ég ætla ekki að ráðast á manninn og kyssa hann án hans samþykkis“ „ Nei dúlla, a men has to earn a kiss from you, it doesn‘t come for free“ „Þessar eldheitu tilfinningar munu líða hjá fyrr en um síðir, þangað til verðuru bara að vera sterk“.
Að lokum vil ég bara segja gangi ykkur sem allra best með kynhvöt ykkar og Gleðilegt 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi! Munum að ábyrgðin er alltaf gerandans sama hvernig þolandinn hagar sér.
Herdís Júlía Júlíusdóttir


















