
Ilmurinn stígur upp úr reykhúsinu á Skútustöðum að baki Gylfa Yngvasonar sem heldur á nýreyktu hangikjötslæri á myndinni. Fyrstu lærin eru tilbúin og er ekki að efa að sumir fá vatn í munninn við tilhugsunina um það sem fram undan er.
Gylfi Yngvason á Skútustöðum hefur í ýmsu að snúast þessa dagana. Árstíðarbundið annríki er í reykhúsinu sem hann rekur, en alls munu um 400 hangikjötslæri fara í gegnum reykinn hjá Gylfa fyrir þessi jól.
Verkun Gylfa og þá ekki síst taðreykingin heillar kaupendur og eru flestir viðskiptavinanna að hans sögn „áskrifendur“ að jólagóðgætinu. Gylfi segir þó þarfir viðskiptavina mismunandi. Sumir vilji bara framparta, aðrir kjósi tvíreykt kjöt en sú aðferð hefur notið vaxandi vinsælda meðal matgæðinga sem snæða þá kjötið ósoðið. Gylfi nefnir þó að svo skemmtilega vilji til að fullorðið fólk sem ólst upp við mikið reykt og saltara hangikjöt en nú er verkað, kaupi nú æ oftar tvíreykt kjöt en borði það ekki hrátt heldur sjóði það! Með því upplifi sumir „gamla bragðið“ eins og fólk þekkti það áður fyrr. Þá séu sumir sem vilji feitt hangikjöt en yngra fólk og heilsufrík séu ekki ráðandi í þeim hópi.
-BÞ





























