Fyrirmynd í málefnum fatlaðra

Fyrirmynd í málefnum fatlaðra
Akureyri hefur verið reynslusveitarfélag til fjölda ára og eru málefni fatlaðra til sóma að sögn Sifjar Sigurðardóttur og Elínar Lýðsdóttur hjá Þroskahjálp á Norð- urlandi.

Akureyri hefur verið reynslusveitarfélag til fjölda ára og eru málefni fatlaðra til sóma að sögn Sifjar Sigurðardóttur og Elínar Lýðsdóttur hjá Þroskahjálp á Norð- urlandi.

Alþjóðadagur fatlaðra er 3. desember næstkomandi, á þriðjudag. Þroskahjálp á Norðurlandi eystra stendur fyrir umfangsmiklu starfi fyrir fatlaða og í tilefni af baráttudeginum fram undan spurði Akureyri vikublað þær Sif Sigurðardóttur og Elínu Lýðsdóttur sem sitja í stjórn félagsins spjörunum úr.

Hver er saga Þroskahjálpar á Norðurlandi eystra?
„Forsagan er sú að nokkrum foreldrum fatlaðra barna á Akureyri fannst kominn tími til að snúa þróuninni við og vinna að því að börn með fötlun fengju að búa heima hjá foreldrum með aðstoð frá ríki eða sveitarfélagi í stað þess að vera send á stofnun eins og tíðkast hafði. Þetta félag hét Foreldrafélag barna með sérþarfir. Það var stofnað 1979 og fyrsti formaður og aðal hvatamaður að stofnun þess var Jón E. Aspar og kona hans Margrét Oddsdóttir. Félagið beitti sér meðal annars fyrir því að koma á fót ýmsum stuðningi við heimilin svo sem dagvistun og sumardvöl og úrbótum í trygginga- og skólamálum auk þess að ná fram úrbótum í líkamsþjálfun fyrir fatlaða en ekkert af þessu stóð fötluðum til boða á þessum tíma án baráttu. Félag þetta byggði á grunni eldri félaga en þar höfðu áherslur verið aðrar. Þroskahjálp á Norðurlandi eystra tók svo við af Foreldrafélagi barna með sérþarfir og við erum meðlimir í Landsamtökunum Þroskahjálp.“

Staðið vörð um hagsmuni
Hver er tilgangur starfseminnar um þessar mundir?
„Megin tilgangurinn er að standa vörð um hagsmuni fatlaðra, vinna að úrbótum og stuðla að auknum lífsgæðum. Málefni fatlaðra eru málefni samfélagsins þannig að það er okkar hlutverk að vekja athygli almennings á málaflokknum. Við leggjum líka áherslu á að styðja og aðstoða foreldra og fatlaða í sinni persónulegu réttindabaráttu og efla þeirra þekkingu með reglulegum fræðslufundum eða stuðning við aðra sem bjóða slíka fræðslu.“

Í hverju felst starfið einkum?
„Mikill hluti starfseminnar snýr að því að standa vörð um það sem áunnist hefur ásamt því að fylgja eftir úrbótum í ýmsum málum, til dæmis skólamálum, húsnæðismálum og atvinnumálum. Landssamtökin Þroskahjálp eiga bæði samstarf við stjórnvöld um málefni fatlaðra ásamt því að berjast fyrir réttindum fatlaðra. Sama gildir um okkar félag, nema við horfum meira til nærsamfélagsins. Við höfum verið svo lánsöm að eiga gott samstarf við Akureyrarbæ. Við fáum tækifæri til að koma okkar skoðunum, áhyggjum eða hugmyndum á framfæri með samráðsfundum með stjórnendum hjá Akureyrarbæ. Það er hlustað á okkar skoðanir og við fáum líka tækifæri til að fylgja eftir hagsmunamálum hópa eða einstaklinga innan okkar félags, þetta er reyndar einsdæmi hér á landi. En eins og í allri hagsmunabaráttu fáum við ekki allt samþykkt sem við leggjum til en á það er ótrúlega mikilvægt að hafa beina leið til þeirra sem bera ábyrgð á málefnum fatlaðra.“

Elín og Sif segja annan stóran þátt í starfsemi Þroskahjálpar vera fræðslu forráðamanna og fatlaðra. Í því felist til dæmis stuðningur við forvarnafræðslu fyrir fatlaða, fræðslu fyrir forráðamenn um þjálfun og margt fleira. „Til dæmis höfum við fengið svokallaða Systkinasmiðju hingað norður til hjálpa systkinum fatlaðra barna takast á við þær aðstæður sem því fylgja að eiga fatlað systkini ásamt því að fræða börnin um fatlanir systkinanna. Á döfinni er m.a. vímuefnafræðsla í samvinnu við SÁÁ og Akureyrarbæ. Við styrkjum eftir getu íþróttastarf fatlaðra og höfum nokkra skemmtiviðburði á ári, má þar nefna ball í Hlíðarbæ og Þorrablót.“

Fullgilding sáttmála Sameinuðu þjóðanna
Um landsstarfið segja Elín og Sif að Þroskahjálp á Norðurlandi taki virkan þátt í starfsemi Landssamtakanna, sæki ráðstefnur á þeirra vegum auk þess sem Sif eigi sæti í stjórn Landssamtakanna. „Það er mjög mikilvægt fyrir okkur að fylgjast með því hvað er að gerast á landsvísu en ekki síður að fá hugmyndir um hvaða þróun á sér stað í löndunum í kringum okkar. Fullgilding sáttmála Sameinuðu þjóðanna um málefni fatlað fólks hefur lengi verið baráttumál Landssamtakanna. Þessar vikurnar er verið að leggja lokahönd á íslensk þýðingu sáttmálans og vonum við að styttist í að þessi sáttmáli verði fullgildur á Íslandi.“

Hvernig verður baráttu dagsins fram undan minnst?
„Við höldum upp á daginn í samvinnu við Sjálfsbjörg og Ferlinefnd Akureyrarbæjar. Í ár verðum við á Bjargi klukkan 17.00 og allir eru velkomnir. Það verður boðið uppá veitingar, ferlinefnd veitir viðurkenningu og við ætlum að afhenda nokkra styrki til félaga sem vinna gott starf í íþróttum fyrir fatlaða.“

Hafa fatlaðir dregist aftur úr öðrum hópum samfélagsins í harðri baráttu um lífskjörin eftir hrun?
„Nei, ekki frekar hérna á Akureyri en annarstaðar á landinu, við teljum að vandinn sé reyndar meiri á öðrum stöðum á landinu. Við vitum líka að það er minni peningur núna til ráðstöfunar í þennan málaflokk hjá sveitarfélaginu eins og í öllum sveitarfélögum, það hafa allir þurft að skera niður. Þar sem Akureyri hefur verið reynslusveitarfélag til fjölda ára, þá erum við komin með mjög góðan grunn í þessum málum og getum rekið málefni fatlaðra með sóma, en þar sem öll önnur sveitarfélög eru nýlega búin að taka við þessum málaflokki frá ríkinu þá eru þau mun aftarlegar en við í þessum málum, það má því segja svo að við séum fyrirmynd hinna sveitarfélaganna í málefnum fatlaðra.“

Þarf að auka upplýsingar
Hvað með aðgengi fatlaðra? Hvernig stendur Akureyri sig þar?
„Þegar rætt er um aðgengismál fatlaðra vill það oft brenna við, að eingöngu sé horft til aðgengis fyrir hreyfihamlaða. Aðgengi er sem sagt ekki bara að húsnæði heldur einnig aðgengi að upplýsingum eða farartækjum.

Varðandi aðgengi að húsnæði þá hefur það gengið nokkuð vel, þó alltaf megi gera betur og þurfum við sífellt að vera á verði, hér á Akureyri er starfandi Ferlinefnd með einstaklingum frá okkur, frá Sjálfsbjörg og frá Akureyrarbæ. Fólk með þroskahömlun og margir aðrir fatlaðir hafa almennt ekki bílpróf eru því alfarið háð því að ferliþjónusta hins opinbera gefi þeim það frelsi sem aðrir telja sjálfsagt að hafa. Í nútímasamfélagi er það sjálfsögð krafa að fatlaðir, hvort sem um er að ræða þroskahömlun eða líkamlega fötlun, hafi ákvörðunarrétt í sínum málum og þá er aðgengi að upplýsingum grundvallaratriði.“

Hvernig er staðan í húsnæðismálum og atvinnumálum ykkar fólks?
„Mætti vera betri en margt hefur áunnist á síðastliðnum áratugum. Það er ekki langt síðan allir bjuggu á stofnunum, síðan komu sambýlin en núna er þróun í átt til sjálfstæðrar búsetu. T.d. er núna verið að byggja húsnæði fyrir nokkra unga Akureyringa sem eru að flytja úr foreldrahúsum. Þau mun öll hafa sínar séríbúðir en síðan verður líka sameiginlegt rými sem þau geta valið um hvort þau nýta eða ekki. Þetta sjá flestir okkar félagsmenn sem fyrirmyndarfyrirkomulag. Hinsvegar má segja að framtíðarskipulag á þessum málum mætti vera í betri skorðum. Okkur finnst að frekar hafi verið um lausnir á vandamálum dagsins í dag að ræða en framtíðarskipulagning.“

Val verði aukið
Það er margt gott sem verið hefur gert í atvinnumálum fatlaðra en kannski má segja að fatlaðir hafi oft ekki mikið val. Framtíðarsýnin er að það verði meira val í boði. Þar horfum við til nágrannalandanna þar sem hópar fatlaðra hafa fengið aðstoð við að stofna fyrirtæki með stuðningi. Slíkt verkefni var sett í framkvæmd í vor í Reykjavík og kaffihúsið Gæs rekið í nokkra mánuði sem tilraunaverkefni af fólki með þroskahömlun sem var að ljúka diplómanámi frá HÍ. Vonandi verða slík verkefni fleiri og að úr verði framtíðar atvinnutækifæri þar sem fatlaðir geta valið sér atvinnu í samræmi við hæfni og áhuga.“

Eitthvað að lokum?
Við vonum að sem flestir láti sjá sig þann 3ja desember á Alþjóðadegi fatlaðra en samkoma verður haldin í salnum á Bjargi v/ Bugðusíðu klukkan 17.00 . Eins og áður segir mun Þroskahjálp veita styrki til félagasamtaka, ferilnefnd Akureyrarbæjar veitir viðurkenningu fyrir gott aðgengi fyrir fatlaða og Sjálfsbjörg veiri styrki m.a. til tækjakaupa. Veitingar og skemmtiatriði í boði og að sjálfsögðu eru allir velkomnir sem á einn eða annan hátt láta málefni fatlaðra sig varða. Við skorum á félagsmenn og aðstandendur til að mæta sem og íbúa sambýlanna hér á Akureyri.“

-BÞ

Jenný Lára

Elska – einleikur eftir Jennýju Láru Arnórsdóttur

Eru einkenni sannrar ástar þau sömu í dag og um miðbik síðustu aldar? Hafa þau breyst? Eða hefur skilgreining okkar á sannri ást breyst í gegnum tíðina? Hvað hefur breyst? Einleikurinn, Elska, er ... Lesa »

Glódís Ingólfsdóttir

Hvaða afleiðingar hefur klámvæðing?

Á síðustu árum hefur klámvæðing vaxið hratt í samfélaginu okkar og nær alltaf til yngri hópa. Klám er farið að smeygja sér inn í okkar daglega líf án þess að við tökum eftir því. Sá hópur fólks sem ... Lesa »

midbaer_sk_a8_3-14156

Drög að nýju miðbæjarskipulagi kynnt á íbúafundi

Opinn íbúafundur um drög að nýju skipulag miðbæjarins verður haldinn í Hofi í dag, mánudaginn 2. desember, kl. 17-19. Á fundinn munu þeir Logi Már Einarsson, arkitekt hjá Kollgátu ehf. og Ómar ... Lesa »

Commitments (3)

Skóli setur upp Commitments

Tónatak - Rytmiska deildin við Tónlistarskólann á Akureyri setur upp Söngleikinn The Commitments í Hamraborg - Hofi miðvikudaginn 4. desember kl. 20:00. Sagan The Commitments var skrifuð af Roddy ... Lesa »

Forsvarsmenn nokkurra stéttarfélaga sem veittu styrkinn og félaganna fjögurra sem hann fengu.

Styrkur til hjálparsamtaka í Eyjafirði

Sjö stéttarfélög í Eyjafirði afhentu sl. fimmtudag Mæðrastyrksnefnd Akureyrar, Hjálparstarfi kirkjunnar, Hjálpræðishernum og Rauða krossinum styrk að upphæð kr. 1.920.000. Þetta kemur fram í ... Lesa »

Helga Guðrún Kristjánsdóttir

Kynjafræði er búin að eyðileggja líf mitt

Klámvæðing kallast það þegar klám læðir sér inn í daglegt líf okkar án þess að við tökum eftir því. Það er hægt að rökræða það fram og til baka hvort það sé í raun eitthvað til sem heitir klámvæðing ... Lesa »

Borgný Finnsdóttir

Sársaukinn eftir Borgnýju Finnsdóttur

Akureyri vikublað hefur fengið leyfi til að birta nokkra af þeim verkum sem send voru í verðlaunasamkeppnina Ungskáld Akureyrar sem haldin var nýverið. Hér má lesa smásöguna Sársaukinn eftir Borgnýju ... Lesa »

Ilmurinn stígur upp úr reykhúsinu á Skútustöðum að baki Gylfa Yngvasonar sem heldur á nýreyktu hangikjötslæri á myndinni. Fyrstu lærin eru tilbúin og er ekki að efa að sumir fá vatn í munninn við tilhugsunina um það sem fram undan er.

Reykir 400 hangikjötslæri fyrir jólin

Gylfi Yngvason á Skútustöðum hefur í ýmsu að snúast þessa dagana. Árstíðarbundið annríki er í reykhúsinu sem hann rekur, en alls munu um 400 hangikjötslæri fara í gegnum reykinn hjá Gylfa fyrir þessi ... Lesa »

Saemd-175x268

Sæmd – á skjön við samfélagið

Þjóðskáldið og fjölfræðingurinn Benedikt Gröndal (1826 –1907), sem er kunnastur fyrir ævisögu sína Dægradvöl, bráðfyndnu gamansöguna Heljarslóðarorrustu og teikningar sínar af íslenskum fuglum, gegnir ... Lesa »

Inga Þöll Þórgnýsdóttir

Er kjaftað og slúðrað á vinnustaðnum?

- Um þagnarskyldu, vammleysisskyldu og ótilhlýðilega háttsemi á vinnustað Þessi grein er unnin upp úr fyrirlestrum sem undirrituð hefur haldið á mörgum vinnustöðum Akureyrarkaupstaðar og reyndar ... Lesa »

María Pálsdóttir

Spennandi að díla við djöfulinn í leikhúsinu

Samlestur leikara er hafinn fyrir Gullna hliðið, stærstu sýningu leikársins, en verkið verður frumsýnt 17. janúar nk. hjá Leikfélagi Akureyrar. Gullna hliðið er eitt af þekktustu og vinsælustu ... Lesa »

Akureyri hefur verið reynslusveitarfélag til fjölda ára og eru málefni fatlaðra til sóma að sögn Sifjar Sigurðardóttur og Elínar Lýðsdóttur hjá Þroskahjálp á Norð- urlandi.

Fyrirmynd í málefnum fatlaðra

Alþjóðadagur fatlaðra er 3. desember næstkomandi, á þriðjudag. Þroskahjálp á Norðurlandi eystra stendur fyrir umfangsmiklu starfi fyrir fatlaða og í tilefni af baráttudeginum fram undan spurði ... Lesa »

Fagna Gestsdóttir á jólasveinarannsóknarstofunni. Þar gefst gestum kostur á að sannreyna virkni þeirra hluta sem tengjast jólunum.

82 Jólasveinar

Það er eins gott að klára sokkinn sem er á prjónunum því annars er von á Flotsokku sem fyllir sokkinn af floti áður en hún nappar honum. Og Flotsokka er ekki ein á ferð. Rannsóknir sem gerðar hafa ... Lesa »

Fanney Kristjánsdóttir

Við erum föst í ofbeldissambandi með ríkisstjórninni

Af því að ég vinn ekki hjá ríkisstofnun ætla ég að tjá hug minn óttalaus. Eftir síðustu kosningar hef ég forðast að hugsa um stjórnmál. Einfaldlega af því að ég verð ýmist döpur, reið eða fyllist ... Lesa »

Jón Óðinn Waage

Varðstjórinn og ég

Þeir sem þekkja mig segja að ég tali óskýrt, það er líklega rétt. Það hefur stundum valdið vandræðum eins og eftirfarandi frásögn staðfestir. Við vorum tveir á göngu niður í bæ, ungir laganna ... Lesa »

IMG_1968 2.02

Portrett Pálínu

Á morgun, laugardaginn 30. nóvember, kl. 14 opnar Guðrún Pálína Guðmundsdóttir bæjarlistamaður Akureyrar 2013 myndlistarsýninguna Portrett í Populus Tremula í Listagilinu á Akureyri. Sýningin er ... Lesa »

DST_6751

Hressleikur í Sjallanum

Leikhópurinn Grímurnar sýnir nú gamanleikinn Gúgglaðu það bara í Sjallanum á Akureyri. Leikhópurinn var stofnaður síðastliðið haust og setti þá upp söngleikinn Berness, já takk & franskar á milli. ... Lesa »

Mikið stuð verður hjá menntskælingum um helgina. Mynd af vef MA

Góð frétt úr MA

Árshátíð MA, ein stærsta vímulausa hátíð sem haldin er árlega á Íslandi, fer í kvöld í Íþróttahöllinni á Akureyri. Undirbúningur er í höndum nemendra sjálfra og tekur nokkrar vikur að sögn Bjarna ... Lesa »

Mynd: Ragnar Hólm Ragnarsson

Aðventuævintýri á Akureyri hefst á morgun

Á morgun, laugardaginn 30. nóvember, kl. 16 verða ljósin tendruð á jólatrénu á Ráðhústorgi en það er gjöf frá Randers, vinabæ Akureyrar í Danmörku. Dagskráin hefst með tónlist frá Blásarasveit ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

„Mig langar að lasta hundaeigendur í Innbænum sem leyfa hundunum sínum að vappa um hverfið frjálsum og eftirlitslausum.“ Þannig hefst bréf lesanda til blaðsins. „Slíkt skapar bæði óöryggi meðal íbúa ... Lesa »

macbeth

Fær frábæra dóma fyrir Macbeth

„Ég fór út til að ögra sjálfum mér, fá innblástur og athuga hvar ég stend meðal þeirra bestu. Árangurinn hvetur mig enn frekar áfram. Uppsetningin mín á Macbeth er nú í skoðun fyrir leiklistarhátíðir ... Lesa »

Hnotubrjóturinn

3,6% íbúa bæjarins koma að Hnotubrjótnum í Hofi

Hnotubrjóturinn er án efa einn þekktasti ballett sögunnar og er settur upp víða um heim á hverjum jólum. Svo segir í tilkynningu frá Sinfóníuhljómsveit Norðurlands en nú á laugardaginn, 30. nóvember, ... Lesa »

Erling Ingvason

Sölsi útgerðir næst undir sig hlutaskiptakerfið?

Erling Ingvason, frambjóðandi Dögunar, sem skipaði 2. sætið á lista flokksins í NA-kjördæmi fyrir alþingiskosningar í vor, segir það „klikkaða“ hugmynd ef gefa eigi útgerðum fiskkvóta. Þar vísar hann ... Lesa »

Virkni- og hæfingarstöðin við Skógarlund. Mynd: akureyri.is

Jólamarkaður í Skógarlundi

Árlegur jólamarkaður miðstöðvar virkni og hæfingar við Skógarlund verður haldinn föstudaginn 29. nóvember frá kl. 13-15.30 og laugardaginn 30. nóvember frá kl. 10-16. Þar verður til sölu ýmis ... Lesa »

Embla Orradóttir. Mynd: Ragnar Hólm Ragnarsson

Dyr eftir Emblu Orradóttur

Akureyri vikublað hefur fengið leyfi til að birta nokkra af þeim textum sem sendir voru í verðlaunasamkeppnina Ungskáld Akureyrar sem haldin var nýverið. Neðst má finna hlekki á á ljóðið Ævintýraþrá ... Lesa »

Skoða meira