Á morgun, föstudaginn 29. nóvember, er hádegissamvera í Eymundsson þar sem Bjarni Fritzson les upp úr nýútkominni bók sinni, Strákar, og spjallar við gesti. Bjarni segir að nóg sé komið af því að tala um stráka, nú þurfi að tala við strákana sem oft skorti heilbrigðar fyrirmyndir og fræðslu.
Dagskráin er hluti af 16 daga átaki gegn ofbeldi sem er Alþjóðlegt átak gegn kynbundnu ofbeldi er nú haldið í 23 sinn. Átakið stendur í 16 daga frá mánudeginum 25. nóvember sem er alþjóðlegur baráttudagur gegn ofbeldi gegn konum og til 10. desember en það er hinn alþjóðlegi mannréttindadagur. Markmið átaksins er að knýja á um afnám alls kynbundins ofbeldis. Undanfarin ár hafa ýmis félagasamtök, fyrirtæki og stofnanir komið að átakinu hér á Akureyri ásamt Jafnréttisstofu.
Þema átaksins í ár er baráttan gegn hernaðarhyggju en auk þess var ákveðið hér á Akureyri að leggja sérstaka áherslu á unglinga, ofbeldi og klámvæðingu. Löngu orðið tímabært að taka það mál á dagskrá, samanber viðtal sem birtist í Akureyri vikublaði og lesa má hér.


















