3,6% íbúa bæjarins koma að Hnotubrjótnum í Hofi

Hnotubrjóturinn

Hnotubrjóturinn er án efa einn þekktasti ballett sögunnar og er settur upp víða um heim á hverjum jólum. Svo segir í tilkynningu frá Sinfóníuhljómsveit Norðurlands en nú á laugardaginn, 30. nóvember, gefst tækifæri til að sjá þetta klassíska jólaævintýri í frumlegum og líflegum búningi. Um 350 dansarar á öllum aldri dansa um sviðið við kröftugan undirleik SN og má búast við litríkri fjölskyldusýningu þar sem öllu er til skartað, að sögn talskonu SN.

Sýningin er sett upp í samstarfi SN og dansskólans Point Dansstúdíós sem stofnaður var 2005 af Sigyn Blöndal. Sigyn er jafnframt handritshöfundur sýningarinnar. Hljómsveitarstjóri er Guðmundur Óli Gunnarsson. Þetta er í fyrsta sinn sem SN heldur danssýningu og ríkir að sögn Brynju Harðardóttur hjá SN mikil ánægja með þessa nýbreytni. Möguleikar hljómsveitarinnar hafi vaxið jafnt og þétt síðan hún flutti í Hof.

Dansnemendur hafa æft af kappi frá því í haust og mikil spenna ríkir meðal þeirra sem og hljóðfæraleikara og allra þeirra sem leggja hönd á plóginn. Hátt í 500 manns koma að sýningunni með einum eða öðrum hætti. Reiknast Akureyri vikublað það til að sá fjöldi nema um 3,6% allra íbúa á Akureyri.

“Umgjörð sýningarinnar verður hin glæsilegasta og fagmannlegasta en samhliða því sem sagan er sögð í gegnum dans og tónlist verður sviðsmyndin einstaklega lifandi þökk sé myndbandagerðarhönnuðinum Heiðari Má Björnssyni og ljósahönnuðinum Frey Vilhjálmssyni,” segir Brynja Harðardóttir, framkvæmdastjóri SN.

Uppselt er á báðar sýningar.

-BÞ

Sigurður Bogi Ólafsson

Emil syngur Mamma þarf að djamma

Sigurður Bogi Ólafsson er 11 ára og í vetur er hann betur þekktur sem Emil í Kattholti úr Freyvangsleikhúsinu. Siggi Bogi er 11 ára og í 6. bekk í Naustaskóla, honum er margt til lista lagt og þegar ... Lesa »

1508467_10151886666242800_1190090637_n

Jólasýning á rússneskum teiknimyndum

Um næstu helgi verða barnasýningar á rússneskum teiknimyndum í sýningarsal Ungmenna-Hússins á 4. hæð Rósenborgar. Myndirnar eru allar án tals og því er rússneskukunnátta ekki nauðsynleg til þess að ... Lesa »

Andrea Hjálmsdóttir

Hvatning til akureyrskra kvenna

Mánudaginn 2. desember var opinn íbúafundur haldinn í Hofi þar sem kynntar voru tillögur að nýju skipulagi fyrir miðbæ Akureyrar. Tillögurnar eru að mínu mati mjög fínar og hefur hópurinn sem unnið ... Lesa »

Ármann og Brogan á sviði

Miðaldra skólastjóri gerist atvinnudansari

Ármann Einarsson hefur látið af störfum sem skólastjóri í tónlistarskólanum á Dalvík og starfar nú sem atvinnudansari. Hann er þriggja barna faðir, 48 ára gamall, 172 sentímetrar á hæð og með bumbu og ... Lesa »

Arnbjörg Kristín Konráðsdóttir

Heilandi tónar gongsins

Gongslökun hefur notið æ meiri vinsælda hér á Íslandi á undanförnum árum sem leið til að kyrra hugann og slaka djúpt á. En hvað er það við þessa tegund slökunar sem hefur svona góð áhrif á ... Lesa »

Hanna Þórsteinsdóttir

Opið bréf til Lilju Bjarkar

Mig langar til að byrja á því að svara þeirri vangaveltu þinni um hvort það geti verið að þú sért karlremba. Ég held nú ekki en aftur á móti gæti ég trúað því og finnst reyndar ansi augljóst að þú ... Lesa »

Hildur Eir Bolladóttir. Mynd: Guðrún Hrönn

Fannst ekkert töff að vera prestur

Þegar skipuleggjendur þessa viðburðar höfðu samband við mig og báðu mig um að tala hér reyndist mjög knýjandi að finna einhvern titil á þetta spjall, já bara upp á auglýsingar að gera. Ég hef ... Lesa »

Lilja Björk Þuríðardóttir

Opið bréf til Íslendinga

Ég er búin að vera að lesa í gegnum allskonar greinar núna síðastliðna daga sem allar eiga það sameiginlegt að lýsa því hvað konur eiga nú óskaplega bágt. Við erum endalaus fórnarlömb hinna vondu ... Lesa »

Jólatónleikar Karlakórs Akureyrar verða í Akureyrarkirkju

Karlar og stúlkur saman á jólatónleikum

Hátíð í bæ! Jólatónleikar í Akureyrarkirkju 12. desember. Karlakór Akureyrar-Geysir og Stúlknakór Akureyrarkirkju taka höndum saman á hátíðlegum og fallegum jólatónleikum í Akureyrarkirkju á miðri ... Lesa »

Sædís Ingimarsdóttir

Kæri Bjarni Benediktsson

Eftir fréttaflutning í sjónvarpinu í gær varð ég bara að senda þér línu. Eftir því sem mér skilst þá er stefnan að draga saman í barna- og vaxtabótum og ég eyddi meirihlutanum af gærkvöldinu í að ... Lesa »

Prins Polo

Síðustu sérfræðingar ársins eru Prins Póló

Fjórðu tónleikar í tónleikaröðinni Sérfræðingar að Sunnan verða haldnir á sviði menningarhússins Hofs á Akureyri fimmtudaginn 12. desember. Hljómsveitin Prins Póló mun þar stíga á stokk ásamt ... Lesa »

Herdís Júlía

Þú kveikir alveg í mér maður!

Ágæti karlmaður! Með þessu litla bréfi vildi ég bara vinsamlega biðja þig að hætta spila á gítar, ekki dirfast til að vera með vöðva og í guðanna bænum ekki sýna góðmennsku, hvað þá segja ... Lesa »

Sóley Björk Stefánsdóttir

Breytingar framundan hjá akv.is

Þann 4. apríl 2012 fór vefurinn akv.is/akureyrivikublad.is fyrst í loftið. Það var undirrituð ásamt Völundi Jónssyni sem stóð að því í samráði við Björn Þorláksson, ritstjóra Akureyrar vikublaðs. Þá ... Lesa »

Frá haustmarkaði Grasrótar

Desembermarkaður Grasrótar

Um helgina, 7. og 8. desember, geta Akureyringar og gestir bæjarins komið á árlegan desembermarkað Grasrótar að Hjalteyrargötu 20. Þar verða opnar vinnustofur þar sem félagar í Grasrót kynna starfsemi ... Lesa »

Jenný Lára

Elska – einleikur eftir Jennýju Láru Arnórsdóttur

Eru einkenni sannrar ástar þau sömu í dag og um miðbik síðustu aldar? Hafa þau breyst? Eða hefur skilgreining okkar á sannri ást breyst í gegnum tíðina? Hvað hefur breyst? Einleikurinn, Elska, er ... Lesa »

Glódís Ingólfsdóttir

Hvaða afleiðingar hefur klámvæðing?

Á síðustu árum hefur klámvæðing vaxið hratt í samfélaginu okkar og nær alltaf til yngri hópa. Klám er farið að smeygja sér inn í okkar daglega líf án þess að við tökum eftir því. Sá hópur fólks sem ... Lesa »

midbaer_sk_a8_3-14156

Drög að nýju miðbæjarskipulagi kynnt á íbúafundi

Opinn íbúafundur um drög að nýju skipulag miðbæjarins verður haldinn í Hofi í dag, mánudaginn 2. desember, kl. 17-19. Á fundinn munu þeir Logi Már Einarsson, arkitekt hjá Kollgátu ehf. og Ómar ... Lesa »

Commitments (3)

Skóli setur upp Commitments

Tónatak - Rytmiska deildin við Tónlistarskólann á Akureyri setur upp Söngleikinn The Commitments í Hamraborg - Hofi miðvikudaginn 4. desember kl. 20:00. Sagan The Commitments var skrifuð af Roddy ... Lesa »

Forsvarsmenn nokkurra stéttarfélaga sem veittu styrkinn og félaganna fjögurra sem hann fengu.

Styrkur til hjálparsamtaka í Eyjafirði

Sjö stéttarfélög í Eyjafirði afhentu sl. fimmtudag Mæðrastyrksnefnd Akureyrar, Hjálparstarfi kirkjunnar, Hjálpræðishernum og Rauða krossinum styrk að upphæð kr. 1.920.000. Þetta kemur fram í ... Lesa »

Helga Guðrún Kristjánsdóttir

Kynjafræði er búin að eyðileggja líf mitt

Klámvæðing kallast það þegar klám læðir sér inn í daglegt líf okkar án þess að við tökum eftir því. Það er hægt að rökræða það fram og til baka hvort það sé í raun eitthvað til sem heitir klámvæðing ... Lesa »

Borgný Finnsdóttir

Sársaukinn eftir Borgnýju Finnsdóttur

Akureyri vikublað hefur fengið leyfi til að birta nokkra af þeim verkum sem send voru í verðlaunasamkeppnina Ungskáld Akureyrar sem haldin var nýverið. Hér má lesa smásöguna Sársaukinn eftir Borgnýju ... Lesa »

Ilmurinn stígur upp úr reykhúsinu á Skútustöðum að baki Gylfa Yngvasonar sem heldur á nýreyktu hangikjötslæri á myndinni. Fyrstu lærin eru tilbúin og er ekki að efa að sumir fá vatn í munninn við tilhugsunina um það sem fram undan er.

Reykir 400 hangikjötslæri fyrir jólin

Gylfi Yngvason á Skútustöðum hefur í ýmsu að snúast þessa dagana. Árstíðarbundið annríki er í reykhúsinu sem hann rekur, en alls munu um 400 hangikjötslæri fara í gegnum reykinn hjá Gylfa fyrir þessi ... Lesa »

Saemd-175x268

Sæmd – á skjön við samfélagið

Þjóðskáldið og fjölfræðingurinn Benedikt Gröndal (1826 –1907), sem er kunnastur fyrir ævisögu sína Dægradvöl, bráðfyndnu gamansöguna Heljarslóðarorrustu og teikningar sínar af íslenskum fuglum, gegnir ... Lesa »

Inga Þöll Þórgnýsdóttir

Er kjaftað og slúðrað á vinnustaðnum?

- Um þagnarskyldu, vammleysisskyldu og ótilhlýðilega háttsemi á vinnustað Þessi grein er unnin upp úr fyrirlestrum sem undirrituð hefur haldið á mörgum vinnustöðum Akureyrarkaupstaðar og reyndar ... Lesa »

María Pálsdóttir

Spennandi að díla við djöfulinn í leikhúsinu

Samlestur leikara er hafinn fyrir Gullna hliðið, stærstu sýningu leikársins, en verkið verður frumsýnt 17. janúar nk. hjá Leikfélagi Akureyrar. Gullna hliðið er eitt af þekktustu og vinsælustu ... Lesa »

Skoða meira