Akureyri vikublað hefur fengið leyfi til að birta nokkra af þeim textum sem sendir voru í verðlaunasamkeppnina Ungskáld Akureyrar sem haldin var nýverið. Neðst má finna hlekki á á ljóðið Ævintýraþrá eftir Agnesi Ársælsdóttur sem hlaut fyrstu verðlaun í samkeppninni og smásöguna Gæs eftir Kristófer Pál Viðarsson sem hlaut önnur verðlaun. Á næstu dögum verða birt fleiri verk úr samkeppninni.
Embla Orradóttir deildi þriðja sætinu með Borgnýju Finnsdóttur.
Dyr
Stend ég einsamall úti í kuldanum, og ber að dyrum
Dyrum fortíðar
Ég ber að dyrum í vonlausri tilraun til að endurheimta það sem áður var
Blóð mitt hefur dreifst yfir minningarnar,
því ég bankaði svo fast að skrápur minn hafði ekki lengur við
Stend ég einsamall í þögninni,
og ber að dyrum Dyrum framtíðar
Ég ber að dyrum í vonlausri tilraun til að komast yfir hið liðna á örskotsstund
Hætti þegar ég finn húðina á hnúunum gefa eftir,
ég vil ekki að framtíðin verði líka blóði drifin
Stend ég einsamall í hópi fólks,
og ber að dyrum Dyrum nútíðar
Ég ber að dyrum í vonlausri tilraun um að vekja eftirtekt
Svo að einhver sjái eymd mína,
sárin eru ófá og blóðið er farið að storkna.






























