Lof fá formenn stjórnarflokkanna þeir Sigmundur Davíð og Bjarni Ben fyrir að gera hlutina í réttri röð, segir karl af Eyrinni sem sendi blaðinu háðskan póst. „Eins og flugfreyjurnar segja alltaf, setjið súrefnisgrímuna á ykkur áður en þið hjálpið börnunum. Þeir gerðu því rétt í að fella niður auðlegðarskattinn af sjálfum sér til að vera betur í stakk búnir til að hálpa öðrum,“ skrifar Eyrarpúkinn…
Lof fær einnig hinn skeleggi utanríkisráðherra Gunnar Bragi sem hefur farið mikinn í embætti SÍNU að undanförnu. „Nú hefur hann sýnt öllum í Kaupfélaginu heima hvernig hann tekur Evrópusambandið og Alþingi í sitt hvora nösina án þess að blikna. Minnir svolítið á máltækið góða úr hruninu, ég á það - ég má það,“ skrifar sami karl…
Last fá þeir sem tekið hafa Dalsbraut í gagnið án þess að huga nægilega að götulýsingu fyrir skólabörnin, segir kona sem hafði samband við blaðið. Fleiri hafa tekið í sama streng. Umbótum hefur þegar verið lofað, þannig segir Akureyringur á facebook að enn eigi eftir að setja kúpla á ljósastaurana, þarna sé slysagildra þegar tekur að dimma. Geir Kristinn Aðalsteinsson hjá L-listanum heitir því að gengið verði í málið…
Lof fá aðstandendur Akureyrarvöku sem unnu gott starf um síðustu helgi, segir kona sem hafði samband…
Lof fá starfsmenn Norðurorku á Akureyri fyrir að bregðast skjótt við vandræðum á sunnudagskvöldi. Klukkan 21.15 fór rafmagn af 10 húsum á eyrinni, Hríseyjargötu og Strandgötu. Aðveituæð mun hafa slegið út í einu húsi sem svipti önnur níu rafmagninu. Viðgerðarsveit mætti eins og skot og fann strax út bilunina. Öll hús fengu rafmagn strax nema húsið þar sem bilunin kom upp og segir karl sem hringdi í blaðið að hann hafi hælt þeim á hvert reipi, flokkurinn hafi verið til mikillar fyrirmyndar. Og það á sunnudagskvöldi…



