„Við sem erum í nýrri stjórn Þórdunu fórum strax að hugsa um það síðastliðið vor að hafa nýnemahátíðina okkar í ár á þessum nótum og að því höfum við síðan unnið að undanförnu. Fyrir tveimur árum var hér lögð af busavígsla sem hafði tíðkast lengi og gekk meðal annars út á, eins og í sumum öðrum framhaldsskólum, að niðurlægja nýnema. Í fyrra var farin önnur leið sem gekk ekki alveg nógu vel en ég tel að reynslan af hátíðinni í ár hafi sýnt að við höfum stigið farsælt skref. Við erum stolt af því að hafa fyrst framhaldsskóla valið að bjóða nýnema velkomna í skólann okkar á þennan skemmtilega hátt,“ segir Hólmfríður Lilja Birgisdóttir, formaður Þórdunu - nemendafélags VMA um nýnemahátíð sem haldin var í skólanum í gær.
„Við erum mjög ánægð með hvernig til tókst. Ég gat ekki betur séð en að allir skemmtu sér hið besta,“ segir Hólmfríður í viðtali á vef VMA
Hefðbundin kennsla var felld niður eftir hádegið í gær, sett var upp draugahús inni í skólanum og ýmsum leiktækjum komið fyrir á skólalóðinni þar sem einnig var boðið upp á kandífloss, pylsur og gos. Nemendahátíðin var til klukkan 16 en eftir það var fjölskylduhátíð til klukkan 18 þar sem fólk utan úr bæ gat komið og skemmt sér í leiktækjunum.
Myndir frá nýnemahátíðinni má sjá hér.
-SBS





