Bláberja eftirréttur

Bláberja eftirréttur

Bláberja eftirréttur

Þessi eftirréttur er ótrúlega einfaldur. Í botninn er panna cotta með sýrðum rjóma, í miðjunni berjafrauð og ofan á dýrindis aðalbláber. Hvað er fullkomnara á haustdögum á Íslandi?

Uppskriftin er fyrir 4 stóra eftirrétti en er hægt að miða við 6 aðeins minni skammta.

Panna cotta

  • 2 dl rjómi
  • 3 msk sykur
  • 1 tsk vanilludropar
  • 3 blöð gelatín
  • 90 gr sýrður rjómi (1/2 dós)

Berjafrauð

  • 2.5 dl bláber
  • 1 msk sykur
  • 3 blöð gelatín
  • 1.5 dl rjómi, þeyttur
  • Bláber til skreytingar

Undirbúningur: 25 mínútur með bið
Kæling: 2 klst

Byrjaðu á að útbúa panna cotta, neðsta lagið. Leggðu matarlímsblöðin í disk með köldu vatni. Settu rjóma, sykur og vanilludropa í pott og láttu koma að suðu, slökktu undir og láttu kólna örlítið. Settu matarlímsblöðin út í og þeyttu vel saman.

Hrærðu nú sýrða rjómanum vandlega saman við. Skiptu á milli 4 eða 6 glasa og láttu kólna og stirðna inni í ísskáp.
Eftir u.þ.b. klukkustund geturðu útbúið frauðið.

Maukaðu 2.5dl af berjum í matvinnsluvél. Settu maukið í pott með sykri og láttu koma að suðu, sykurinn þarf að leysast upp og þetta þarf því ekki að sjóða. Láttu kólna. Leggðu matarlímsblöðin á disk í kalt vatn og þeyttu nú rjómann.

Hrærðu matarlíminu vel og vandlega saman við maukið. Þegar maukið hefur kólnað þá hrærirðu því varlega saman við þeytta rjómann svo að blandist vel. Helltu ofan á panna cotta lagið í glösunum. Settu inn í ísskáp og láttu stirðna. Það getur tekið stutta stund eða allt að 1 klst.

Þegar er komið að því að bera fram þá seturðu fersk ber ofan á glösin.

Njótið!

Helga Kvam
Allskonar.is

Sólbjört Guðmundsdóttir

Ljósheimaskóli

Mikil vitundarvakning hefur átt sér stað hjá Íslendingum um að hamingjan komi í megindráttum að innan. Fólk finnur sig í jóga, hugleiðslu, núvitund, andlegri iðkun sem veitir lífsfyllingu sem ekki ... Lesa »

Ertu verktaki eða starfsmaður?

Það er mikill munur á því að vera launamaður eða verktaki og mikilvægt að fólk átti sig á í hverju munurinn felst. Sem launamaður ertu með ráðningasamning og safnar réttindum á vinnumarkaði, ... Lesa »

Öll grunnskólabörn heimsækja Hof

Menningarhúsið Hof stendur fyrir skólaheimsóknum í vetur og mun starfsfólk Hofs taka á móti öllum 6. bekkingum í grunnskólum Akureyrar og nærsveita. Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir framkvæmdarstjóri Hofs ... Lesa »

Tólf nemar í húsgagnasmíði í VMA

Tólf nemar stunda nú nám í húsgagnasmíði í VMA og þar af eru fimm konur. Aldrei hafa fleiri nemar verið í húsgagnasmíði á þeim þrjátíu árum sem skólinn hefur starfað. Námið í húsgagnasmíði tekur fimm ... Lesa »

Akureyrarbær taki á móti flóttafólki

Andrea Sigrún Hjálmsdóttir, VG lagði á fundi bæjarráðs Akureyrar sl. fimmtudag fram hvatningu um að Akureyrarbær taki á móti flóttafólki en Flóttamannanefnd sem starfar á vegum Velferðarráðuneytisins ... Lesa »

Akureyringar spjara sig í heimi snjóbrettaíþróttarinnar

Akureyringar virðast spjara sig vel úti í hinum stóra heimi snjóbrettamennskunnar en einn þeirra sem leggur stund á greinina er hinn 27 ára gamli Gulli Guðmundsson sem er meðal annars á samning hjá ... Lesa »

Kristneshæli – fordyri hins hvíta dauða

Bygging Kristneshælis var mikið þrekvirki. Fjöldi manns kom að verkinu beint eða óbeint og í nóvember árið 1927 var það tekið í notkun. Almennt samkomulag var um nauðsyn þess að reisa heilsuhæli til ... Lesa »

Pílagrímsför fyrir ferðamenn – Af hverju ekki?

Af hverju komum við ekki Akureyri á kortið með hjálp Jóns Sveinssonar? Áttar yngri kynslóðin sig á því hvað Nonni var frægur í Evrópu og víðar á fyrri hluta 20. aldar? Kannski er eldri kynslóðin farin ... Lesa »

Af Landi og sonum, sveitasímum og fleira

Æskuslóðirnar mínar eru í Svarfaðardal. Ég er heimaalið barn og hleypti vart heimdraganum út fyrir Eyjafjörðinn að nokkru ráði fyrr en 19 ára gömul. Fyrstu fjórtán árin var ég nánast algerlega ... Lesa »

Norðurheimskautsbaugshlaup

Norðurheimskautsbaugshlaup TVG Zimsen var hlaupið í Grímsey í gær í einmuna veðurblíðu. Þetta er í annað skipti sem efnt er til þessa nyrsta almenningshlaups á Íslandi. Hlaupinn var einn hringur í ... Lesa »

Mozartveisla

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands hóf starfsár sitt 2013-2014 – tuttugu ára starfsafmælisár sitt – með tónleikum í Hofi 30. október og bauð upp á þrjú verk eftir meistara Wolfgang Amadeus Mozart; einn ... Lesa »

Hildur Eir Bolladóttir. Mynd: Guðrún Hrönn

7/9/13

Sjö níu þrettán bank bank. Hvað er svona sérstakt við þessar tölur? Jú þær eru allar taldar heilagar, ekki það að tölur sem slíkar hafi ákveðna landhelgi eins og allt sem er heilagt heldur vísa þessar ... Lesa »

Heyrst hefur

Heyrst hefur

Heyrst hefur að meintur titringur innan háskólasamfélagsins á Akureyri sé ofmæltur eftir að Ólína Þorvarðardóttir, fyrrum þingmaður Samfylkingar, vann kosningu um stöðu sviðsforseta Hug- og ... Lesa »

Bláberja eftirréttur

Þessi eftirréttur er ótrúlega einfaldur. Í botninn er panna cotta með sýrðum rjóma, í miðjunni berjafrauð og ofan á dýrindis aðalbláber. Hvað er fullkomnara á haustdögum á Íslandi? Uppskriftin er ... Lesa »

Kyrrðarstund vegna sjálfsvíga

Í tilefni alþjóðlegs dags sjálfsvígsforvarna verður haldin kyrrðarstund í Glerárkirkju þriðjudaginn 10. september kl. 20:00. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir leiðir stundina, aðstandandi segir frá reynslu ... Lesa »

Hann kenndi mér um allt saman

Laufey er sjö barna móðir sem ekki hefur átt auðvelt líf. Hún gagnrýnir ýmislegt í kerfinu m.a. barnavernd Norðurþings sem hún segir hafa lagt meiri áherslu á að sundra fjölskyldunni eftir að upp ... Lesa »

KA burstaði Völsung

KA og Völsungur áttust við í gærkvöldi á Húsavík, þar sem að KA menn fóru með öruggan sigur af hólmi, 6-0. Þrátt fyrir þennan sigur KA-manna, skipti leikurinn engu máli upp á stöðuna í deildinni en KA ... Lesa »

Lof og last

Lof og last vikunnar

Lof fá formenn stjórnarflokkanna þeir Sigmundur Davíð og Bjarni Ben fyrir að gera hlutina í réttri röð, segir karl af Eyrinni sem sendi blaðinu háðskan póst. „Eins og flugfreyjurnar segja alltaf, ... Lesa »

Segðu mér satt og Blakkát um helgina

Um helgina verða fyrstu sýningar leikársins hjá Leikfélagi Akureyrar en í kvöld verður fyrsta sýning af fimm á verki Bjarkar Jakobsdóttur, Blakkát, sem sýnt var í Gaflaraleikhúsinu sl. vetur við góða ... Lesa »

Martröð ef fólk hlær ekki!

Einn umtalaðasti listamaður landsins þessa dagana, Hugleikur Dagsson, flytur uppistand í Hofi í kvöld, föstudagskvöld, klukkan 21. Í viðtali við Akureyri vikublað segist Hugleikur hafa gert uppistand ... Lesa »

Glæsileg nýnemahátíð hjá VMA

„Við sem erum í nýrri stjórn Þórdunu fórum strax að hugsa um það síðastliðið vor að hafa nýnemahátíðina okkar í ár á þessum nótum og að því höfum við síðan unnið að undanförnu. Fyrir tveimur árum var ... Lesa »

Akureyringur sigraði í British Public Radio Award

Sigurður Þorri Gunnarsson er 24 ára Akureyringur sem útskrifaðist úr fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri vorið 2012 og stundar nú meistaranám í fjölmiðlafræði við háskólann í Sunderland á ... Lesa »

halogotop (1)

Kristín Ágústsdóttir ráðin í markaðs- og kynningarmál HA

Ákveðið hefur verið að ráða Kristínu Ágústsdóttur í starf forstöðumanns markaðs- og kynningarmála hjá Háskólanum á Akureyri. Kristín er með MSc gráðu í markaðsfræðum og alþjóðaviðskiptum og ... Lesa »

Ólæsisvandi minni á Akureyri en í Reykjavík?

Vísbending er um að lestrarkunnátta nemenda í tveimur fyrstu bekkjum grunnskólans á Akureyri sé ekki sami vandi og nú er ræddur í Reykjavík. Aðeins 63% sjö ára barna í Reykjavík geta lesið sér til ... Lesa »

Heiftin um Reykjavíkurflugvöll

Í umræðunni um framtíð Reykjavíkurflugvallar takast á tvö meginsjónarmið; þeirra sem vilja hann áfram í óbreyttri mynd og hinna sem vilja nota svæðið til að þétta byggð. Báðir hafa nokkuð til síns ... Lesa »

Skoða meira